Viðey þriðjudagskvöld

20 jún 2007 15:03 #1 by Orsi
Replied by Orsi on topic Re:Viðey þriðjudagskvöld
Jáhérna, þetta varð hinn myndarlegasti hópur. Fjögur komum við frá klúbbnum, Sævar, Gummi B, Vilborg og Orsi. Helmingi fleiri voru í hópnum hans Steina og sameinuðust hóparnir við Viðeyjarbryggju og tóku hring um eyna í sumarhita. Það var þetta þvílíka háflóð í gær að róið var nánast upp í grasvellina á Viðey og áhugavert að skoða eyjuna með þessum hætti. Selur synti með hópnum og fjör var í fuglum. Þetta var gott framtak hjá Ástu Þorleifs og Steina C í samvinnu við Reykjavikurborg - eða hvernig sem þetta kom til. Gaman að taka þátt í þessu.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

19 jún 2007 17:03 #2 by Orsi
Replied by Orsi on topic Re:Viðey þriðjudagskvöld
Þetta er upplagt. Ég stefni á mætingu 18:30 í Geldinganesið, beint úr vinnu. Það er spáð blíðu og lygnum sjó. Ekki dónalegt það.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

18 jún 2007 22:36 #3 by Asta
Sælir félagar
Endilega fjölmennið við Viðeyjarbryggju kl. 19.30 og takið þátt í léttum róðri meðfram eynni. Nú er að auka hróður kayakróðra og veita Steina stuðning. Sjá frétt hér að neðan

Í kvöld, þriðjudagskvöldið 19. júní, verður kajakkynning í stað hefðbundinnar þriðjudagsgöngu í Viðey. Seakayak Iceland mun taka á móti gestum við Viðeyjarbryggju og fara yfir grunnatriðin í meðferð og siglingu kajaka. Að því loknu verður róið meðfram strönd Viðeyjar og virtar fyrir sér ýmsar fallegar bergmyndanir sem þar finnast. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla þá sem hafa haft áhuga á að kynnast þessari ört vaxandi sporti og útivistarmöguleika að stíga sín fyrstu skref eða róa sinn fyrsta róður undir leiðsögn fagmanna. Viðey er vinsæll áningarstaður þeirra sem stunda kajakróðra á Sundunum og því við hæfi að halda þar kynningu af þessu tagi.

Þetta er fyrsta þriðjudagsgangan af þremur í Viðey í sumar sem ætlað er að vekja athygli á afþreyingarmöguleikum Viðeyjar. Seinna í sumar verður \"fjallahjólaganga\" þar sem hjólað verður eyjarenda á milli og í lok sumars verður stafgönguleiðsögn.

Kajakkynningin hefst með siglingu til Viðeyjar frá Sundahöfn kl 19:15 og tekur um tvær klukkustundir. Ferjutollur og kynning kosta 2000 kr fyrir fullorðna og 1000 kr fyrir börn. Allir þátttakendur fá Egils Kristal í boði Ölgerðarinnar.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum