Þriðjudagspuð

11 sep 2018 20:59 #1 by Orsi
Replied by Orsi on topic Þriðjudagspuð
Það var þriðjudagsæfing í kvöld. Þrír bátar á sjó. Rörum Lundey Geldinganes í fínu lensi á bakaleiðinni. Heimtum 10,7 km úr þessu dæmi. Hér var róið allákaflega og dró enginn af sér. Ekki einu sinni Eymi sem röri með galopna afturlest. Það uppgötvaðist þegar hann hóf veltuæfingar. Undarlega afturþungur báturinn eitthvað...
Þessir röru: Eymi, Gummi B og Orsi.

www.relive.cc/view/1835103029

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

22 nóv 2016 21:27 #2 by Gíslihf
Þriðjudagspuð was created by Gíslihf
Það voru einum fleiri ræðarnir í dag en í ofurtunglsróðri Örlygs.
Páll R og Gísli H F réru.

Leiðin lá gegnum íshröngl við fjöru, að Leirvogshólma og inn í víkina við Víðines, lensað vestur fyrir Geldinganes og puðað heim í aðstöðu.

Þess má geta að við villtumst inn í víkina, það átti að vera Þerneyjarsund :unsure:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum