Gæsla í árlegu Viðeyjarsundi (18. ág)

18 ágú 2017 12:17 #1 by SAS
Viðeyjarsundinu hefur verið frestað, þar til í næstu viku vegna veðurs

kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 ágú 2017 21:36 #2 by SAS
Formaður Sjósundfélags Rvk var að hafa samband. Þau neyðast til að fresta sundinu um klst, til kl. 19:00 vegna skipaumferðar. Við mætum kl 18:30 við Skarfaklett

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 ágú 2017 13:15 - 16 ágú 2017 13:17 #3 by Gíslihf
Ég kemst ekki. Ekki er langt síðan Palli Gests fékk mig til að vera með öryggiskajak í alþjóðlegri þríþraut á Meðalfellsvatni og það var spennandi verkefni. Orkan og keppnisgleðin flæddu frá manni til manns. Sumir róuðust þó allverulega þegar þeir fóru að synda í öldum og ég var með þeim sem drógust aftur úr. Það reyndi á að vera róandi og spjalla í 3-4 tilvikum, ræða hvort rétt væri að gefast upp eða ekki og jafnvel heyra um fyrri áföll og sjá áfallastreitu bandarískrar konu. Það var allt í góðu lagi, en helst þótti mér óþægilegt þegar sundmaðurinn greip í dekklínu á hlið og var svona að hífa sig upp af og til.

Þá reynir á að vera með lágstuðninginn skotheldan. Það er áratakið sem þar að hita sig upp í, vonandi ekki hástuðningur :ohmy:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

15 ágú 2017 23:01 #4 by Larus
ég mæti
lg

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 ágú 2017 21:28 #5 by Unnur Eir
Ég mæti og ræ frá Gnesi. Kannski í seinna fallinu vegna vinnu :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 ágú 2017 19:23 #6 by Orsi
Kem í þetta.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 ágú 2017 12:12 - 14 ágú 2017 12:13 #7 by SAS
Sjósundfélag Rvk heldur hið árlega sjósund föstudaginn 18.08 kl.17:30 nk - synt verður úr Viðey að Skarfakletti fyrir þá sem synda aðra leiðina og hinir sem fara báðar leiðir - fara frá Skarfakletti og til baka. Óskað er eftir 8-10 kayakræðurum í gæslu, sem verða í samstarfi við björgunarsveitina Ársæl.

Áhugasamir skrái sig á þessum þræði. Ég reikna með að mæta. Mæting er við Skarfaklett kl 17:00

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum