Umgengi um aðstöðuna okkar

26 ágú 2017 21:19 - 28 ágú 2017 11:11 #1 by Gunni
Replied by Gunni on topic Umgengi um aðstöðuna okkar
Þessir sem tóku það að sér að læsa hringdu í mig í sjokki því þeir fundu hvergi lásinn og voru búnir að leita um allt. Einhvað hefur lásinn flogið í millitíðinni.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

26 ágú 2017 12:49 #2 by Svanur
Mikið er leiðinlegt að heyra þetta Ossi. Ég opnaði gáminn seinnipartinn á miðvikudaginn og yfirgaf svæðið kl. 18:30. Þá voru tveir félagsmenn inni og lofuðu þeir að læsa. Þegar ég fór þá var lásinn opinn og hékk á hurðinni og félagarnir að græja sig á sjó. Ég hef ekki hitt þessa einstaklinga áður enda sögðust þeir ekki hafa bleytt bátana í nokkur ár. Ef þeir hafa gleymt að læsa þá finnst mér það mjög miður. Ég er alveg með ykkur í því að umgengnin verður að vera til fyrirmyndar.

kv. Svanur

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

25 ágú 2017 13:36 - 25 ágú 2017 13:38 #3 by Össur I
Nú á miðvikudaginn réru einhverjir félagsmenn frá Geldingarnesi, við heimkomu hafa trúlega þeir hinir sömu opnað sturtugáminn og þvegið báta eins gert er ráð fyrir að gert sé áður en bátar eru settir aftur inn í geymslugáma. Það sem er verra er að þeir hafa ekki læst aftur sturtugámnum og lásinn finnst hvurgi. Þessir lásar eru rán dýrir og þetta hið vesta mál, bæði að lásinn sé týndur og líka að menn farið frá aðstöðunni ólæstri. Einnig hefur eitthvað borið á að það sé að hverfa úr búnað klúbbsins og þá sérstaklega hefur björgunarvestum fækkað. Það er ekki gott mál.
Bið alla félagsmenn að vera vakandi og hugsa um aðstöðuna og búnaðinn eins og þeirra eigin.
Endilega láta mig vita ef einhver kannast við málið eða hefur skýringar á einhverju.
Minni á þetta
UMGENGNI
REGLUR

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum