Jákvæð kynning

14 des 2017 11:46 - 14 des 2017 11:52 #1 by Orsi
Replied by Orsi on topic Jákvæð kynning
Gott mál. Er ekki málið að demba sér í þetta? Ég skrifa umyrðalaust upp á svona ráðagerðir.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

13 des 2017 14:25 - 13 des 2017 14:28 #2 by Gíslihf
Jákvæð kynning was created by Gíslihf
Klúbburinn okkar er með jákvæða kynningu (PR) á vorin þegar fólki er boðið og Gæslan fengin til að hífa einhvern um borð.
Önnur jákvæð kynning gæti verið að bjóða fólki í örstuttan róður frá sandfjörunni Gufunesi (með leyfi réttra aðila) út að Fjósaklettum, milli þeirra og til baka. Það er hægt í góðu vorveðri, með leiðsögn og öryggisgæslu.
Með því vinnum við áhuga fólks sem langar að prófa sportið og þau fá snertingu af náttúrinni þarna, sem erfitt er að veita innsýn í með einhverjum greinaskrifum. Það gæti líka verið sterkur leikur að bjóða borgarfulltrúum eða öðrum, sem taka skipulagsákvarðanir að róa milli Fjósakletta.
  • Klúbburinn gæti fengið nýja félaga
  • Kajakskólinn gæti fengið nemendur á byrjendanámskeið B)
  • Náttúran gæti snert einhverja sem taka ákvarðanir.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum