2018 Nýjar áskoranir

02 jan 2018 18:05 #1 by SPerla
Replied by SPerla on topic 2018 Nýjar áskoranir
Sjálf kíki ég reglulega á heimasíðu klúbbsins en ALDREI á facebook síðuna......enda er ég algjör félagsskítur á samskiptamiðlunum og hef ekkert hugsað mér að breyta því. Punktur og basta!!

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 jan 2018 15:24 - 02 jan 2018 15:31 #2 by Gíslihf
Replied by Gíslihf on topic 2018 Nýjar áskoranir
Góð ábending hjá Inga. Samfélagsmiðlar hafa tekið yfir samskipti og vefnotkun, en gerum við okkur grein fyrir að þar t.d. á Fésbókinni erum við varan og það er ráðskast með okkur og efni okkar eins og vörum er raðað í hillur.
Spurningin er hvernig hægt er að bæta notkun vefsíðunnar. Vefsíðan:
  • er vettvangur fyrir auglýsingar og viðskipti með kajaka og tengdar vörur
  • geymir gagnasafn um klúbbinn, stjórn og nefndir, margskonar fræðslu og eldri ferðir
  • birtir tilkynningar frá stjórn og nefndum
  • er vettvangur til að skiptast á skoðunum
  • þar er hægt að vekja athygli á róðrum og öðrum viðburðum
  • þar er upplagt að auglýsa eftir félögum með stuttum fyrirvara
  • þar má setja inn fræðslu
  • þar má leita ráða
    Þá er spurning hvenær við kíkjum á síðuna. Það er óvani að vera alltaf að gá, en getum við vitað hvort eitthvað nýtt er komið inn?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 jan 2018 19:55 - 01 jan 2018 20:20 #3 by Ingi
2018 Nýjar áskoranir was created by Ingi
Mikið agalega eru félagar í Klúbbnum lélegir í að tjá sig á þessum vef. :S Er þetta orðið úrelt fyrirbæri? Ég veit það ekki en mér finnst að Klúbburinn ætti að hafa sinn stað á vefnum og ef að það er hægt að gera betur þá mætti alveg koma þeim upplýsingum á framfæri hér.
Annars óska ég vinum mínum og róðrarfélögum gleðilegs árs 2018 !

Ágúst Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum