Gordon B Skye hættur

06 jan 2018 21:49 - 06 jan 2018 21:53 #1 by Gíslihf
Kappinn Gordon Brown sem margir félagar kannast við, skrifaði m.a. bók sem við lærðum fyrir 4 stjörnu prófið, er hættur með kajakfyrirtæki sitt í Skotlandi. Hann gefur upp aldur sem ástæðu en hann er um 20 árum yngri en ég :ohmy:
Húsið og fyrirtækið Skyak Adventures er til sölu ef þið hafið áhuga :cheer:
Fjölskyldan er að fara til Vancouver Island, en þangað fluttu margir Vesturíslendingar á efri árum áður fyrr ef ég man rétt. Þar er borgin Victoria og skammt sunnan við landamærin er Seattle. Öll ströndin þarna norður með British Columbia þykir spennandi fyrir sjókajakræðara þannig að ég er ekki alveg viss um að kappinn sé "sestur í helgan stein".
Hér er tengill á síðustu fréttina sem Gordon skrifar á vefsíðu Skyak Adventures:
www.skyakadventures.com/sea-kayaking-sco...n-brown/newsupdates/

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum