Þriggja stjörnu helgi 26-27 maí

11 jan 2018 14:59 #1 by Guðni Páll
Frábært framtak. Vonandi nýta sér sem flestir þetta.

Kv Guðni

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

10 jan 2018 10:13 #2 by Gíslihf
Það er staðfest að við höfum 3ja stjörnu helgi 26.-27. maí n.k.
Steve kajakþjálfari verður með æfingadag á laugardeginum og svo mat á 3ja stjörnu færni daginn eftir. Viðmiðunarfjöldi í mati eru 4 þannig að möguleiki verður að hafa aukadag ef fleiri vilja reyna við 3ja stjörnu matið.
Kostnaður verður svipaður og Bretar þurfa sjálfir að greiða, líklega nálægt kr. 20 þús. en það get ég sagt nánar síðar eftir skoðun með stjórn Kayakklúbbsins.
Við tölum stundum um "sjálfbjarga ræðara" og það er nokkuð sama færni og staðfest er með 3* skírteini frá BC.
Æfingin skapar meistarann og ekki er verra að hafa góða tilsögn og félaga til að líkja eftir. Vonandi fer að rætast úr með sundlaugaæfingar og með vorinu verður svo hægt að slípa færnina á sundunum við Geldinganes.

Kveðja - Gísli H. F.
The following user(s) said Thank You: Klara, Þormar

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum