Sundlaugaæfing sd. 21.1. kl. 19

21 jan 2018 12:52 #1 by Guðni Páll
Eins og Gísli segir hér fyrir neðan er Sundæfing kl 19:00-21:00 í kvöld. Svo það er um að gera að nota þessa frábæru aðstöðu og æfa sig.

Kv Guðni Páll

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

18 jan 2018 12:30 #2 by Gíslihf
Við ætlum að færa æfingatíma í sundlauginni þar til kl. 19 það er kl 7 síðdegis.

Okkur er sagt að það sé laus tími og í raun öruggari en tímar fyrr, þegar einhverjum sundmótum væru hugsanlega ekki lokið.

Næsti tími á sunnudag kl. 19-21.

Gott er að æfa áratækni og veltur. Oftast er hægt að fá aðstoð eða tilsögn frá þeim sem kunna tæknina.

Styttri gerðir kajaka, árar og svuntur eru á staðnum en flestir sjókajakræðarar kjósa að koma með eigin kajaka.

Guðni Páll er skráður æfingastjóri og hann er betri en enginn til að kenna veltuna :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum