Félagsróður ld. 20. janúar

20 jan 2018 14:51 #1 by Sveinn Muller
Nokkrar myndir úr róðrinum í dag. Gerist ekki fallegra veðrið.







Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

20 jan 2018 14:08 #2 by Gíslihf
Þetta varð fallegur vetrarróður eins og sjá mátti fyrir.
Við lögðum ekki í baráttu við ísinn sem nú var vestan við Eiðið og virtist ná hálfa leið að Fjósaklettum.
Þess vegna var róið að Veltuvík, norður Þerneyjarsund, eyjan hringuð og sama leið róin í hlað.

Átta bátar á sjó: GHF, Guðni Páll, Lárus, Gummi Breiðdal, Klara, Sveinn M., Jón Kristinn og Smári.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

19 jan 2018 13:20 - 19 jan 2018 13:21 #3 by Gíslihf
Það er spáð hægri breytilegri átt og frosti um -8°C . Stutt er þó í meiri vind úti á sundunum.

Það verður ágætt hópverkefni að komast út ef ís er við ströndina og það er alltaf einstakt að fara í fallegan vetrarróður.

Mikilvægt er að hafa hlýja vettlinga og húfu.

Mæting 9:30 að venju.

Kveða - Gísli.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum