Sundlauganótt 3. feb. kl. 18

03 feb 2018 10:53 #1 by Gíslihf
Það var sett á dagskrá að við verðum þarna kl 18-20.

Lárus, Perla og undirritaður verða á vettvangi, þannig við erum í góðum málum.

Kv - GHF

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 feb 2018 13:47 #2 by Gíslihf
Takk fyrir það Perla - það verður kl. 18-20.

Okkur vantar svo þriðja mann í viðbót.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 feb 2018 12:04 #3 by SPerla
Ef vantar enn mannskap þá get ég verið

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

31 jan 2018 11:38 #4 by Andri
Ég hef ekki tök á að mæta þarna en hvet félagsmenn til að aðstoða við þetta góða kynningarstarf fyrir okkar sport.

Kv,
Andri

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

30 jan 2018 11:03 - 03 feb 2018 10:49 #5 by Gíslihf
Sundlauganótt laugardagskvöld 3. feb. er einn af mörgum viðburðum á vetrarhátið.
Þá er frítt í Laugardalslaug og boðið upp á einhverja viðburði og er Kayakklúbburinn beðinn um að leyfa fólki að prófa kayak.
Ég var einn í þessu s.l. ár og fólk streymdi inn og ég réð ekki við fjöldann. Maggi segir að oft hafi þett verið bara einn og einn en í þetta sinn gekk starfsmaður milli heitu pottanna og sagði fólki að fara og prófa kajakana!

Ég er til í að vera þarna en verð að hafa a.m.k. tvo með mér. Ef rólegt er þá er bara hægt að æfa sjálfur. Tíminn fyrir Sundlauganótt er 18-22, en ég held að tveir tímar væri nóg fyrir okkur t.d. 19-21 en ætla að sjá hvort það verður samþykkt.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum