Kajakskólinn 2018

21 feb 2018 19:40 - 21 feb 2018 20:40 #1 by Gíslihf
Kajakskólinn 2018 was created by Gíslihf
Verð fyrir byrjendanámskeið hefur hækkað en lækkað fyrir framhaldsnámskeið. Framhaldsnámskeið er nú 4 skipti (8 klst.) og kanóhlutinn hefur verið felldur út.

Reyndar segir í lögum klúbbsins (2. gr.): "Tilgangur félagsins er að standa fyrir iðkun kayak- og kanó-róðurs ... " en ég veit ekki um aðra en okkur Örlyg sem hafa reynt sig við róður á kanó. Það væri þó einfalt mál fyrir Kajakskólannn að bjóða upp á kanó-námskeið. Aftur á móti þyrfti ég að fá "aðstoðarkennara" ef kenna ætti á straumkajak og surfskíði :ohmy:

Skráningar eru farnar að berast, en námskeiðin, sem eru á sjó, hefjst eftir miðjan apríl.
kajakskolinn.is/namskeid/skraning/

Með kveðju - Gísli.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum