Næturróður III

31 mar 2018 19:36 - 31 mar 2018 20:09 #1 by Orsi
Replied by Orsi on topic Næturróður III
Tveir bátar á sjó. Við sjósettum kl. 22:26 i gær ok rörum í hrokablíðu og eggsléttum sjó í Engey. Fullt tungl og varla ský á himni. Sjósettum síðan í morgun kl. 10:36 og hittum félagsróður við Viðey, hvar við urðum vitni að því er félagsróðurinn var að hreinsa Ísland; 50 kg netadræsa dregin úr klettóttri fjöru milli sandanna og hef ég ekki séð annað eins uppsett afl á vettvangi kayakmennsku við að vernda náttúru vora gegn plastmengun í hafi. Innilega til hamingju með þetta afrek.

En að næturróðri III...hann röru Kiddi ok ek.
Takk fyrir þessa seríu, næsta verður í haust. Nefndin.

Þetta vidjó svindlar á mér; sýnir skringilega landgöngu norðan Engeyjar. Litli maðurinn inní tækinu hefur verið að fá sér.
www.relive.cc/view/1480656806

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

28 mar 2018 09:02 #2 by Orsi
Næturróður III was created by Orsi
Næturróður III - mæting kl. 21. á fös.
ÞAð stefnir í hrokablíðu. Gott mál.

Og þá er það Engey sem við róum í. Höfum Þerney til vara. Þetta verður gaman.

Sameinumst félagsróðri/3 stjörnu æfingum Gísla að morgni. Þessi atburðarás verður hönnuð í skjóli nætur og nístingskulda í viðkomandi eyju. Þetta fer örugglega allt í vitleysu hjá okkur.
Munið viðlegubúnaðinn.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum