Myndasafn á flickr

30 mar 2018 11:15 - 30 mar 2018 11:15 #1 by Gunni
Myndasafn á flickr was created by Gunni
Myndaborðinn á síðu klúbbsins fer vonandi ekki framhjá neinum og vonandi takið þið líka eftir því að myndir eru endurnýjaðar reglulega. Vinnan (og heiður) er í höndum Jónasar myndasnillings sem grípur hverja þá mynd sem við skilum af okkur af sportinu og lagar þær til svo þær henti betur á borðann :)

En að auki tók hann myndasafn (og myndasögu) klúbbsins og færði frá Picasa yfir á Flickr. Sjá : Flickr myndasíða klúbbsins .

Kostur við framsetningu á Flickr er að við getum flakkað um öll albúm og þ.a.l. sögu klúbbins eins og myndir frá okkur sýna hana.

Uppspretta sögunar er hjá okkur hverjum og einum og gaman að framlögum frá ykkur í myndasafnið.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum