Nýjar klúbbsárar

13 apr 2018 21:59 - 13 apr 2018 22:08 #1 by gsk
Nýjar klúbbsárar was created by gsk
Á síðasta ársfundi klúbbsins var umræða um búnaðinn okkar og hvað mætti betur fara.

Stjórn pantaði nokkrar Celtic árar og koma þær í aðstöðuna okkar á morgun.

Um er að ræða 205cm, 210cm og 215cm árar þannig að flestir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Gömlu ál árarnar okkar munu fara í sundlaugina eftir að búið verður að breyta skurðinum á þeim.

Nýju árarnar eru greinilega merktar með stóru "K" á hægra blaðinu.
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum