Fyrsta námskeið Kajakskólans

19 apr 2018 13:44 - 19 apr 2018 13:45 #1 by Gíslihf
Fyrsta byrjendanámskeið vorsins hjá Kajakskólanum er nú um helgina. Það er frá kl.13 þannig að við verðum ekki fyrir klúbbfélögum, en reyndar eru þetta bara 4 nemendur sem ekki fer mikið fyrir.

Fjórir er mátulegur fjöldi á byrjendanámskeiði og gefur færi á einstaklingsmiðaðri kennslu. Það er hægt að hafa 6 á námskeiði með einum kennara og þeim búnaði sem er fyrir hendi, en þá er betra að það sé samhentur hópur. Minnst held ég námskeið fyrir tvo, nema einhver vilji fá "einkaþjálfara" á tvöföldum taxta :ohmy:

Þið megið alveg mæla með þessum námskeiðum, því að það er enn nóg pláss.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum