Angelsey Symposium 2018

09 maí 2018 22:52 #1 by SAS
Replied by SAS on topic Angelsey Symposium 2018
Sjöunda ferðin mín á Anglesey Symposium og er hvergi hættur. Þessar ferðir verða betri með hverju árinu.

Henti myndum inn á photos.app.goo.gl/39YbgpoUcqvVDPM19


kveðja
The following user(s) said Thank You: Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

09 maí 2018 21:48 - 09 maí 2018 21:50 #2 by Gíslihf
Replied by Gíslihf on topic Angelsey Symposium 2018
Bestu þakkir Ingi fyrir skemmtilega frásögn, hún er það góð að jafnast á við að hafa verið sjálfur á svæðinu.

Vel er komist að orði víða eins og "sjórinn var frekar ósléttur" - einhvern veginn minnir þetta mig á orðfæri félaganna í Fóstbræðrasögu, ekki verið að ýkja hlutina.

Ég minnist svona loftkasta þar sem aldan kom aftan að manni og ég man alveg eftir ferðinni niður :ohmy:
The following user(s) said Thank You: Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

09 maí 2018 20:37 - 10 maí 2018 14:30 #3 by Ingi
Angelsey Symposium 2018 was created by Ingi
Öll komum við heim aftur heil og höldnu eftir góðan hitting hjá Nigel Dennis í Holyhead. Í þessari ferð voru forhertir ræðarar í bland við nýliða. Allir, fullyrði ég að komu heim eftir að hafa farið útfyrir þægindaramman, sumir fóru langt útfyrir og fengu þar afeiðandi meira fyrir peninginn en hinir.
Hópurinn samanstóð af eftirfarandi: Hörður, Maggi, Sveinn Axel, Sveinn Muller, Lárus, Guðni Páll, Helga, Valli og Unnur Eir ásamt undirrituðum. Sem sagt Íslendingahópurinn. Ekki sá ég stærri hópa þarna þó að heildarfjöldinn hafi á einhverjum tímapunkti losað 100. Ræðarar frá Skandinavíu, Eystrasalti, Þýskalandi, Hollandi og Belgíu fyrir utan lókal tjalla á stangli hér og þar.
Allt var þetta vel skipulagt og fólk skráði sig í þær ferðir sem þeirra hugur stóð til. Allir gátu fengið eitthvað við sitt hæfi, moving water hét einn flokkurinn, forward padding, BCU training fyrir 3, 4 og 5 stjörnur og svo var adventurous intermediate or advanced paddlers day paddling og kannski eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu, en allavega eftir morgunfund með Nigel Dennis um kl 09 héldu ræðarar hver í sinn hóp og þar tóku við tveir þjálfarar eða coachar eins og þeir kalla það við hópnum og fóru yfir aðalatriði dagsins. Grindur með 10-18 keipum voru svo dregnar út að flæðarmálinu þar sem að hjálpast var að til að koma öllu sem fljótast í sjó.
Fyrsti dagur:
Við Lárus og Sveinn Axel tókum það sem kallað er intermediat or advanced daypaddling. Það þýddi í þetta skiptið að farið var úr lítilli vík sem heitir Port Daf Ararch : www.thebeachguide.co.uk/north-wales/angl...h-dafarch-photos.htm
eða eithvað líkt því og ferðinni heitið í Penhryn Mwar.:

Veður var örugglega ákjósanlegt fyrir bestu ræðarana en fyrir mig og þá sem voru þarna í fyrsta skipti voru aðstæður á mörkunum og kannski aðeins yfir. Sunnan 8-10ms og vesturfallið að komast í fullan gang. Hópurinn var 12 manns og 2 fararstjórar sem voru í þetta skiptið Simon Osbourn og Peter frá Tjekklandi. Sjórinn var frekar ósléttur og það batnaði ekki fyrr en í eftir miðdaginn og þá var nú ýmislegt búið að ganga á.

Hópurinn fór í gegnum hvert sundið á fætur öðru þar sem að straumurinn mætti vindöldunni og á straumskilum mynduðust fjallháar öldur sem þeyttu þessu keipskeljum langt upp í loft. Ég fór eina svona ferð og þótti tryggast að hald mér í keipinn á uppleiðinni en ég man lítið eftir ferðinni niður en það litla sem ég man var að vegna froðu og ókyrrðar var að mínu mati sjenslaust að ná veltu svo að ég þaut með miklum hraða undan straumi á hvolfi og komst undan kayaknum nokkur hundruð metra frá klettinum þar sem Peter tók við mér og hjálpaði mér að komast aftur um borð. Á meðan sá ég Lárus, Guðna Pál og Svein Axel fara fram og aftur um þessi þröngu bil á milli skerja með vindinn á hlið og strauminn á fullu á móti og þeim virtist bara líða vel í þessum ósköpum. Reru þarna afturábak og áfram eins og á sléttum sjó. Ekki var laust við að maður fylltist smá aðdáun og kannski örlítilli öfund. En það stendur til bóta. Ég kem aftur og bakka uppí straumkastið einn daginn.

Hin Helga og Valli, Unnur og Sveinn Muller voru í það sem þeir þarna kalla treining. Hörður var í enn öðru og Maggi fór með hópa í steinhopp. Rock hopping kalla þeir það. Þetta var mín fyrsta ferð og ég er löngu búinn að ákveða að fara aftur að ári og þá betur undirbúinn.

Þakka ferðafélögum mínu fyrir frábæra ferð og vonast tilað sjá sem flesta aftur að ári. Þá ætlar Nigel að hafa Íslendingakvöld og hvaðer betra en að grilla nokkrar kótilettur fyrir bretana?
kv
Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum