Sundlaugaæfing 13. maí

12 maí 2018 17:13 #1 by Gíslihf
Það er æfing í innilaug Laugardalslaugar á morgun sunnud. kl. 16 - 18.
Ekki er líklegt að ég mæti á réttum tíma, þar sem ég er með byrjendanámskeið við Geldinganes til að verða kl. 16.

Það er um að gera að mæta bara til að æfa veltuna og fleira, starfsfólkið á von á ykkur, en þeir sem mæta fyrstir með kayaka sína þurfa að gera vart við sig í afgreiðslunni til að fá opnað.

Sérstaklega vil ég hvetja 3ja stjörnu æfingahóp til að nota tækifærið.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum