Félagsróður fid. 31.5.

01 jún 2018 11:36 #1 by Gíslihf
Replied by Gíslihf on topic Félagsróður fid. 31.5.
Gott róðrakvöld með um 26 keipum samferða inn í Þerneyjarsund. Þar varð ég eftir ásamt Örlygi og nokkrum í 3ja stjörnu æfingum eða að fylgjast með, alls um 11, en hin um 15 héldu inn í Kollafjörð undir róðrastjórn Guðna Páls og lendu undir Leiðhömrum. Þar mun hafa verið smá alda í lendingu sem var skemmtileg fyrir suma, enda opið út á flóann í hægri vestanátt.
Erlendur gestur var með Guðna Páli, það var Toby Carr, sem er að leggja í krefjandi róðra fljótlega og mun byrja austur við Jökulsárlón.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

30 maí 2018 10:16 - 30 maí 2018 10:17 #2 by Gíslihf
Mæting er á venjulegum tíma fyrir sumarróðra kl. 18:30 Veðurspá er góð, flóð kl. 19:45 Mér dettur í hug að róa inn í Kollafjörð en við getum ákveðið það á pallinum.
Ef þau sem eiga eftir að fara í 3ja stjörnu matið verða á svæðinu getur verið að þau séu með óskir um einhverjar æfingar. Það ætti að vera gagnlegt fyrir aðra en svo má alveg skipta hópnum.

Sjáumst allavega og njótum sumarsins :unsure:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum