Félagsróður 28. júní

29 jún 2018 10:05 #1 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 28. júní
Það voru mjög skemmtilegar en krefjandi aðstæður sem mættu okkur í Geldinganesinu, SA 12-16 m/s, með tilheyrandi vindöldu.
Eftir smá leik í öldunni austan eiðisins, þá fóru þrír ræðarar í land, en sex ræðarar fóru Geldinganes hring. Lensið norðan megin var mjög skemmtilegt, var svo gott að við þræluðumst að hluta til baka, á móti vindinum, frá vestur enda Geldinganes til að lensa aðeins meira, róðurinn endaði í rúmum 9 km.

SAS, Össur, Helga, Gísli HF, Kristinn, Þormar réru GNesið.

kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 jún 2018 08:34 - 27 jún 2018 14:27 #2 by SAS
Síðasti félagsróður júní mánaðar er á morgun. Mæting kl 18:30 í Geldinganesið. Háflóð er kl 18:53.
Týpísku veðri spá fyrir Rvk svæðið, SA 12 m/s, en hitinn í hærra lagi eða 12 gráður

Róðrarleið ákveðin á pallinum

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum