Félagsróður 22. september 2018

22 sep 2018 15:10 #1 by Þorbergur

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

22 sep 2018 14:02 #2 by Helga
Fyrsti laugardags-félagsróðurinn var aldeilis flottur - einmuna blíða og glampandi sól. Ég fékk að vera róðrastjóri í fyrsta skipti og stakk upp á Akranesi en fékk eitthvað dræmar undirtektir. Niðurstaðan var Þerneyjarhringur og svo var Lundey hringuð í framhaldi. Eftirfarandi nutu morgunsins saman á sjó: Ingi, Tobbi, Sveinn Axel, Kiddi, Arian, Andreas, Gummi B., Kristján, Palli, Örlygur og Helga. Ströndin var hreinsuð og kayakaðstaðan líka og svo mætti Arian með wc pappír í aðstöðuna okkar - flott samvinna hjá góðum hópi :)
The following user(s) said Thank You: gsk

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 sep 2018 15:05 #3 by gsk
Nú færast félagsróðrar yfir á laugardag og sá dagur er á morgun.

Undirrritaður er titlaður róðrarstjóri en vegna bakeymsla þá kemst ég ekki :S . Geri ráð fyrir að einhver taki að sér umsjónina.

Hæglætis spá fyrir morgundaginn.

Tilvalið fyrir þá sem ekki komust í gær fimmtudag að bleyta í sér á morgun.

Mæting 09:30 og á sjó 10:00.

Góðar stundir,
Gísli K.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum