Keppnir ársins og stig til íslandsmeistara.

12 okt 2018 14:47 #1 by Ingi
Þessa ákvörðun var ekki hægt að taka fyrr en eftir að við vorum viss um að Bessastaðbikarinn yrði haldin. Það er semsagt úrslitakeppni í kvennaflokki. Getur ekki verið meira spennandi.
kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

12 okt 2018 14:11 #2 by Bjorg
Sæl öll
Hvaða dag var þessi fundur keppnisnefndar þar sem þessi ákvörðun var tekin ?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

12 okt 2018 10:23 #3 by Helga
Í byrjun árs lagði keppnisnefnd upp með að keppnir sem teldu til íslandsmeistara væru Reykjavíkurbikarinn, Hálfmaraþon, Hallarbikarinn og Bessastaðabikarinn.

Nú hefur keppnisnefnd tekið ákvörðun um að Reykjavíkurbikarinn telji ekki til íslandsmeistara þetta árið þar sem keppni var stöðvuð vegna veðurs og erfitt er að rökstyðja að keppni sem ekki er kláruð telji til stiga. Á keppnisdegi gáfum við í nefndinni út að röð keppenda þegar keppnin var stöðvuð myndi gilda en við nánari skoðun og eftir álitsgjöf stjórnar hefur keppnisnefnd horfið frá fyrri ákvörðun sinni.

Niðurstaðan er sem sagt sú að þrjár keppnir telja til íslandsmeistara þetta árið; Hallarbikarinn, Hálfmaraþonið og Bessastaðabikarinn. Við undirrituð biðjumst velvirðingar á misvísandi skilaboðum um leið og við óskum keppendum góðrar stigaveiði í síðustu keppni ársins - Bessastaðabikarnum - á morgun, laugardag.

Kveðja frá keppnisnefnd, Ingi, Helga og Tobbi.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum