Félagsróður 22.12.2018

22 des 2018 12:11 #1 by GUMMIB
Replied by GUMMIB on topic Félagsróður 22.12.2018
Sæl

Stuttur og óvenjulegur róður að baki í fallegu vetrarveðri. Vorum tíu sem sjósettum austanmegin. Planið var að róa Geldingarnesið lagnaðarís var bæði austan og vestan megin. Eftir c.a 20 mín bras í gegnum ísinn var snúið við og sjósett vestanmegin. Smá bras í gegnum ís sem virtist þykkna þegar leið á. Við bryggjuna var ís svo langt sem augað eygði, svo við kölluðum þetta gott og snerum við. Man ekki eftir svona víðáttumiklum lagnaðarís. En þetta endaði í klukkutíma róðri.


Kv.
GUMMIB

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 des 2018 16:19 #2 by GUMMIB
Sæl

Ég verð hann í fyrramálið. Mæting 9:30 á sjó 10:00 reikna ekki með löngum róðri í blíðunni. Sjáumst.

Kv.
GummiB

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum