Félagsróður 10.05.2007

11 maí 2007 14:34 #1 by Ingi
Replied by Ingi on topic Re:Félagsróður 10.05.2007
Þetta var virkilega fín kvöldstund og gaman að sjá fleiri og fleiri eru að taka búnaðinn út fyrir sumarið. Nú er bara að ganga ekki of vel frá dótinu aftur svo að það sé hægt að kippa því út aftur þegar næsta tækifæri gefst. (Munið samt belging.is.):)
Kveðja,
Ingi<br><br>Post edited by: Ingi, at: 2007/05/11 12:08

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

11 maí 2007 13:08 #2 by Hannes
Sjö ræðarar neituðu sér um Evróvision upplifun og reru út frá Geldinganesi í rjómablíðu á fimmtudagskvöldi. Sólgleraugun komu sér vel hjá þeim sem voru með þann aukabúnað.Tekinn var Geldingarnes-Þerneyjar hringurinn og hvergi farið í land. Hittum Magnús á leiðinni sem var að leiðbeina tveimur ræðurum. Við áttum sjálfsagt ánægjulegri kvöldstund en þeir sem þurftu að fylgjast með Austurblokkinni stela undankeppni Evróvision. Þetta er nú meira svindlið! Við samhryggjumst Eiríki og Rúv genginu í Helsikni B)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum