Félagsróður 14. júlí

15 apr 2007 14:12 #1 by Rúnar
Replied by Rúnar on topic Re:Félagsróður 14. júlí
Af gefnu tilefni vil ég taka fram að ég var bláedrú þegar ég skrifaði ferðaslýsingu fyrir félagsróðurinn í gær 14. apríl þótt ég hafi dagsett hann vitlaust (14. júlí) og sett lýsinguna á sölusíðuna.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

15 apr 2007 01:42 #2 by Rúnar
Replied by Rúnar on topic Re:Félagsróður 14. júlí
Nú, þetta átti auðvitað ekki að fara á sölusíðuna. En ég á reyndar nokkra félagsróðra sem ég þarf ekkert sérstaklega að nota og gætu hentað þeim sem eru að safna kílómetrum í keppninni um bestu ástundunina frá Geldinganesi.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

15 apr 2007 01:14 #3 by Rúnar
Sex bátum var hleypt á úfnum sjónum í dag. Heljarmótvindur og síðan dulítil hliðaralda þegar við komum suður fyrir Viðey en harla tíðindalítið, nema kannski fyrir utan forljóta flekakeraldið sem sást í Viðey en þetta ku vera friðarljósið hennar Yoko Ono. . Á milli V.eyjar og norðurodda Geldingarness var hinn skemmtilegasti sjór á köflum; þung undiralda inn fjörðinn og vindalda úr SA. Fínasti túr.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum