Kayaknámskeið í nóv. og des. 2012

Haldin verða námskeið eftirtaldar helgar kl 16 til 18, báða dagana:

24-25. nóvember annars vegar og  15-16. desember hinsvegar.

Námskeiðin eru haldin í innilauginni Laugardal

Þrennskonar námskeið eru í boði það eru byrjandanámskeið, veltunámskeið og framhaldsnámskeið í áratækni.

Á byrjandanámskeiði er kennd umgengni við bátinn, áratækni, félagabjörgun, áraflot og stuðningsáratök. Einnig er kynning á bátum og búnaði. Námskeiðið er 2 x 2 tímar og kostar 15000 pr mann

Veltunámskeið, en eins og nafnið gefur til kynna er kennd veltan. Námskeiðið er 2 x 2 tímar og kostar 15000 pr mann

Áratækni framhald. Þar er farið í öll helstu áratökin til að ná fullkominni stjórn á bátnum við allar aðstæður. Þetta eru sömu áratök og menn þurfa að læra bæði fyrir 3 og 4 stjörnu BCU próf 2x2 tímar  og  kostar 15000 pr mann.

Reyndir kennarar og heimsklassa aðstaða

Bátar og búnaður á staðnum

Skráning fer fram hjá Magnúsi í síma 8973386 eða msig@simnet.is