ReykjanestáNokkrir félagar úr æfingahópi (þriðjudagsróðra) reru frá Stóru-Sandvík, fyrir Reykjanestá og enduðu í Staðarhverfi vestan Grindavíkur laugard. 16.3.

Róið var ríflega 20 km um fjóra og tíma á sjó, en ferðin tók líklega um 10 tíma frá morgni til heimkomu. Tilefni ferðarinnar var "marsátak" mitt annað árið í röð, en Guðni Páll þurfti einnig að kíkja á svona svæði fyrir hringróðurinn sem hann er að búa sig undir.

Reykjanesröstin var ekki erfið í þetta sinn, enda hófst róður tveim tímum eftir flóð og þá var straumur með okkur suður að Reykjanestá næstu tvo tímana. Röst er stillt þegar vindur og fallastraumur eru samferða en norðanáttin var á eftir okkur. Skemmtilegt var að koma við í heitum sjónum utan við Reykjanesvirkjum og einnig að skoða Karl, það er klettaeyja sem stendur með lóðréttum bjargveggjum upp úr sjó út af Reykjanesvita.

Heldur þyngdist róðurinn eftir þetta, straumurinn varð jafnvel á móti okkur og gæti verið um hringstraum (eddy) að ræða nálægt landi. Þá var einnig 6-8 m/s mótvindur þegar komið var fyrir Tána og var þá farið að skyggnast eftir lendingu fyrir matarhlé. Við völdum þá fyrstu sem var þokkalega fær í krika innan við um 50 m langt klettanes þar sem finna mátti skjól fyrir haföldunni. Lending og sjósetning gengu áfallalaust þrátt fyrir fyllur og bratta fjöru sem var eins og hlaðin úr grjótkúlum um 1 m í þvermál. Sumir steinarnir voru hálir af slíi, aðrir af ísskæni.

Ég held allir hafi verið þreyttir og ánægðir eftir ferðina eins og sjá má á þessum myndum af okkur: picasaweb.google.com/gislihf/Mars2012ReykjanestaFelagar

Þetta er erfitt svæði, jafnvel í góðum aðstæðum eins og í dag og hentar aðeins fyrir vel æfðan og samhentan hóp, í honum voru: GHF, Guðni Páll, Lárus, Gunnar Ingi, Palli formaður, Örlygur, Egill og Páll R.

Myndir frá GIG