Frá Pálli R

Frásögn í tveimur hlutum.

Fyrri hluti frá Reyni Tómasi:

Þetta var með eftirminnilegri ferðum á vegum klúbbssins og bestu þakkir til Páls Reynissonar fyrir að skipuleggja þessa góðu daga. Róðurinn hófst í frábæru veðri í Hofsstaðavogi (laxveiðiumsjónarmenn aðeins varir um sig en vinsamlegir og hjálplegir þegar til kom), þaðan var farið í Purkey, svo fram hjá arnarsetri og selaheimkynnum í Hafnareyjar þar sem lundinn réð ríkjum, inn í Kumbaravog og inn fyrir Landey í Bjarnarhöfn. Þar var hið besta tjaldstæði og vel tekið á móti okkur af Hildibrandi bónda þar. Hann hafði okkur í einkafræðslu um svæðið og safnið á virkilega góðu kvöldi.

Nóttin var kyrrlát og sérlega falleg með logni og minnti á að á næsta ári þyrfti að hafa ferð þar sem róið yrði að nóttu til en sofið á daginn! Bjart veður og sólríkt var næsta dag en kominn nokkur strekkingur af norðri þegar lagt var upp suður fyrir Guðnýjarstaðahólma og í nokkrum hliðarvindi út í Akureyjar. Þar tók Jóhann sumarbóndi á móti okkur af mikilli gestrisni, með kaffi og meðlæti á fallegum og skjólgóðum palli og við fengum ekki bara að hvílast og hressast heldur líka að skoða eyjuna og húsin sem að stofni til eru 100 ára gömul. Útsýnið á Bjarnarhafnarfjall, inn Kolgrafafjörðinn og austanverða Eyrarsveitina var frábært. Svo var róið á góðu lensi og undan allnokkrum vindi inn Kolgrafafjörð að Ámýrum, tekin pása og svo farið í talsvert miklum vindi (u.þ.b. 10 m/sek) inn fjörðinn. Róðurinn var strembinn og lent inn við Baulutanga í Kolgrafafirði til að ná landi. Við vorum 6 af 10 sem hættum þar, en fjórir knáir ræðarar hentu sér af stað í ölduna aftur og reru eins og fyrirhugað var inn í botn Kolgrafarfjarðar. Við hin sóttum bíla (8 km ganga fyrir tvo okkar) og snerum heim á leið en hinir héldu áfram túrnum.

Seinni hluti frá undirrituðum (Pálli R):

Þetta var vel heppnað ferðalag og þakka ég öllu samferðafólki samveruna þessa daga. Veður og ábúendur í Bjarnarhöfn og Akureyjum áttu einnig mikinn þátt í ánægjunni. Þau sem þátt tóku í ferðinni voru auk mín, þau Reynir og Steinunn, Sveinn Axel og Hildur, Þorbergur og Frauka, Magnús M., Þorsteinn J. og Perla.

Til þess að fullgera ferðalýsinguna er rétt að tíunda róður hinna "fjögurra fræknu", Sveins, Hildar, Perlu og mín.

Frá Baulutanga og fyrir Berserkseyrarodda rérum við í nokkurri öldu, sem skjótt lægði er við nálguðumst brúna. Þó virtist sterkur vindstrengur og röst liggja út frá brúnni, en við austari brúarsporðinn var lygna. Við vorum þarna nokkuð nálægt liggjandanum eftirsótta og áttum ekki í nokkrum vandræðum með að komast inn fyrir. Síðan var lens in miðjan fjörðinn að Hrafnkelsstaðabotni. Uppi á bakkanum við austurenda túns Eiðis-bæjarins eru ágæt tjaldstæði og víðsýni mikið um fjörðinn. Hægviðri var og sólarglennur um kvöldið en kólnaði nokkuð er leið á kvöldið.

Snemma morguns 1. júlí var logn um allan fjörð, en NA-kaldi er líða tók á daginn. Ákváðum við að hentugast væri að hefja róður frá Baulutanga, komum öllu okkar hafurtaski þangað og hófum róður yfir Urthvalafjörðinn með stefnuna á Öndverðareyri. Kíktum við þar á gamlar bæjartóftir, en þar bjuggu Eyrbyggjar á landnámsöld. Matarhlé tókum við í Suðurbótinni á Eyrarodda.

Róður fyrir Eyrarfjallið var tíðindalítill og höfðum nú vind og öldu frekar með okkur. Kíktum við þó aðeins á skarfabyggðina í Írlandi. Róðurinn léttist enn frekar er komið var fyrir Skarfatangann. Inn á Grundarfirði var hið ágætasta veður og huggulegt að róa með skerjum og töngum inn með austurströndinni. Gerðum við stutta áningu í fjörunni undir Setbergi og lukum síðasta leggnum inn að Grundarkampi um hálf sex, og lauk þar með þessari þriggja daga útilegu.

Heildarvegalengd róin um 55 km.

Myndir: