ImageÁrshátíð laugard. 15. mars !
Ákveðið hefur verið að rigga upp árshátíð Kayakklúbbsins í félagsaðstöðu kafara í nauthólsvíkinni (bláa húsið við ylströndina).
Húsið opnar stundvíslega kl. 19.30 og matur verður framreiddur um klukkustund síðar. Drykkjarföng önnur en kolsýrt sykurvatn og blávatn verður hver og einn að sjá um sjálfur.
Veitt verða verðlaun fyrir helstu afrek síðasta árs.  Þau eru helst: Ármaðurinn 2007, Íslandsmeistarar karla og kvenna í straumi og sjó, kayakkona og -maður ársins og mesti róður frá Geldinganesi 2007. Hin rómaða limbókeppni mun verða á sínum stað ásamt einhverju fleiru tilfallandi.
Miðinn á árshátíðina kostar 0 kr. (veislumaturinn innifalinn).