ImageNú í nóvember og desember verða haldin þrenns konar námskeið í sundlauginni Laugardal. Það eru byrjandanámskeið, veltunámskeið og áratækni framhald.

Námskeiðin eru annars vegar 15. og 16. nóv. og svo 6. og 7. des.

Á byrjandanámskeiði er kennd umgengni við bátinn, áratækni, félagabjörgun, áraflot og stuðningsáratök. Einnig er kynning á bátum og búnaði. Námskeiðið er 2 x 2 tímar og kostar 12000 pr mann

Veltunámskeið, en eins og nafnið gefur til kynna er kennd veltan. Námskeiðið er 2 x 2 tímar og kostar 12000 pr mann

Áratækni framhald. Þar er farið í öll helstu áratökin til að ná fullkominni stjórn á bátnum við allar aðstæður. Þetta eru sömu áratök og menn þurfa að læra bæði fyrir 3 og 4 stjörnu BCU próf

Mjög reyndir kennarar og heimsklassa aðstaða

Bátar og búnaður á staðnum

Skráning fer fram hjá Magnúsi í síma 8973386 eða msig@simnet.is