Breiðafjarðarferð klúbbsins.

02 des 2014 21:49 #1 by Gíslihf
Takk Perla, gaman af þessu, vel sést að veður er leiðinlegt og allir kappklæddir inni í tjaldi :)

Hvernig er þetta, er veðrið alltaf leiðinlegt þegar Reynir Tómas sér ekki um ferðir í Breiðafjörðinn?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

28 nóv 2014 23:43 - 28 nóv 2014 23:47 #2 by SPerla
Loksinsloksinsloksins
Hér kemur vídeo-ið mitt frá Breiðafjarðarferðinni - ef þið eruð búin að gleyma henni að þá ætti þetta að vera ágætis upprifjun. Njótið

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

22 ágú 2014 09:30 #3 by SPerla
Flott myndband! Kemur svo eitt frá mér vonandi von bráðar.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 ágú 2014 23:20 #4 by Klara
Frábært myndband Hákon.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 ágú 2014 20:50 #5 by Ingi
Ert þú ekki á rangri hillu Hákon?. Þetta myndband fær verðlaun á Cannes í flokki ferðamynda 2014. það er mitt mat.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 ágú 2014 10:33 #6 by Guðni Páll
Skemmtilegt video hjá þér Hákon.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 ágú 2014 10:20 #7 by Konyak
Setti upp myndband frá ferðinni hér:

Horfa í HD að sjálfsögðu

Takk aftur fyrir mig,
Kv
Hákon
The following user(s) said Thank You: Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 ágú 2014 09:28 #8 by Marc
Thank you for the trip.
My pictures here
picasaweb.google.com/mh.trancart/Breidaf...v1sRgCIPJhrLv48LrmwE
Marc

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

12 ágú 2014 19:15 #9 by Orsi
Þakka fyrir frábæra ferð, ferðafélögum og farar- og róðrarstjórum og myndasmiðum. Ég færi Gísla K. sérstakar þakkir fyrir læknisaðstoð, og Ólafíu fyrir matvælaaðstoð.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

12 ágú 2014 15:03 #10 by Konyak
Langar að þakka aftur fyrir mig fyrir þennan fyrsta túr með ykkur. Sammála að farastjórar og aðstoðarmenn þeirra stóðu sig vel í að bjarga þessu eftir aðstæðum og að kynna manni fyrir straumunum þarna sem maður hefði ekki lagt blint í.
Það munu koma myndir og myndskeið frá mér en það er bara of gott veður til að ég geti setið inni í myndvinnslu akkúrat núna :)

Tek einn úr vinnuni í Viðeyjarhring í kvöld. Væri hálf hneykslaður að rekast ekki á allavega eitt ykkar á sjónum í kvöld :)

Kv, Hákon

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

11 ágú 2014 23:06 #11 by Sævar H.
Myndir af kayak í hinum ýmsu stellingum. Það hefði verið gaman að sjá myndir af þessari stórbrotnu náttúru eyjanna. Begmyndanir , samspil strauma og fjöruborðs, fuglalífið en það er einmitt þetta sem gerir þetta svæði að hreinni paradís náttúrunnar
Svonan er maður undarlegur :-)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

11 ágú 2014 19:11 - 12 ágú 2014 10:06 #12 by Gunni
Þessi ferð tókst vel. Það er ekki sjálfgefið að hægt sé að hafa plan B í ferðaáætlun en þarna tókst að setja saman plan C með engum fyrirvara. Vel gert Lárus og Guðni.

Hér er einhvað af myndum. ( Albúmið er núna opinbert, klúður hjá mér að hafa það lokað).

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

11 ágú 2014 15:20 #13 by SPerla
Takk fyrir frábæra ferð.
Hér koma myndir frá mér.
picasaweb.google.com/perlath/KayakingInB...Gv1sRgCIuDvt7d7-nkEw

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

10 ágú 2014 22:12 - 30 maí 2017 14:37 #14 by SAS
Flott ferð, fararstjórn og félagar. Takk fyrir okkur

Myndir: goo.gl/photos/RPxwrK9PboYJ3BFa8

kv
Sveinn Axel og Hildur

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

10 ágú 2014 21:46 #15 by Larus
Þá er aflokin fyrsta ferð okkar Guðna um Breiðafjörð þar sem við fetum í fótspor Reynis Tómasar sem hefur haft veg og vanda af þessum vinsælu ferðum í áratug eða svo, við nutum góðs af góðu orðspori Reynis og Kayakklúbbsins hvar sem við bárum niður við undirbúning ferðarinnar.
Akureyjar urðu fyrir valinu sem frumraun okkar þar sem faðir minn ólst þar upp og ég þekkti nokkuð bærilega til en sannarlega eru margar frabærar eyjar sem við hefðum getað heimsótt.
Við unnum heimavinnuna eftir bestu getu, hringdum í eyjaskeggja Birgi og Lilju og fórum i heimsókn fyrir skömmu, skoðuðum aðstæður og handsöluðum leyfi til dvalarinnar, sem var auðfengið, ásamt þvi að hitta bændur á Skarðströnd, Höllu Steinólfsdóttur sem er eigendi hluta Akureyja og Sigurð og Steingrim eigendur Hrúteyja.

Allt var klappað og klárt nema veðrið þar höfðum við ekki eins góð sambönd enda var útlitið ekki uppá það besta fyrir helgina, norðaustanátt og vindur i efri mörkum að okkar mati en i ljósi þess að hópurinn sem var skráður til fararinnar var sterkur og vel vanur héldum við okkar striki þó efasemdar raddir innra með okkur létu vissulega á sér kræla.
Við Guðni ásamt Kollu, Gísla Karls, Gunnari Inga og Marc sem við hittum i Búðardal héldum i dalina eftir hádegi á fimmtudag og slógum upp tjöldum á Staðarhóli.
Kvöldið var svo notað til að skoða aðstæður í Akureyjum frá landi og útlitið var ekkert mjög slæmt en heldur ekki hið besta.
Við höfðum undirbúið plan B ef hið fyrra gengi ekki eftir, höfðum verið i sambandi við Jón i Purkey um að fá að koma þangað og Svein eiganda Hnúks til að fá að skilja bila eftir við Kvennhólsvog, hvoru tveggja var vel tekið.
Við ókum út fyrir Klofning og þar var útlitið miklu betra en Skarðstrandar megin og þar sem veðurútlit var svipað fyrir helgina og þetta kvöld töldum við okkur hafa nokkuð gott B-plan fyrir helgina.
Föstudagur rann upp og við Guðni tökum daginn snemma og fórum i bíltúr út á Skarðströnd og munduðum kíki og vindmæli og útlitið var ekki gott hvítfrissandi hafið og mælirin sló í 13 m.sek i landi við Foss þar sem þó virtist vera mun lygnara en úti á firðinum.
Við héldum til baka þar sem von var á ræðurum sem við ætluðum að hitta um hádegi. Í ljósi aðstæðna kvöldið áður tókum við fram B-planið, hringdum nokkur simtöl og málið var leyst, við færum i Purkey.
Hópurinn ók því út Skarðströnd með smá stoppi í Fagradal hjá Höllu Steinólfsdóttur þar sem örlitlu viðgerðarverkefni á gömlu hjólhýsi sem faðir minn kom fyrir í einni af Akureyjum var komið i hendur hennar þar sem við myndum ekki leysa það i þessari ferð.
Við Kvennhólsvog var ekki lognið sem við höfðum vonast til að finna þar heldur hávaða rok þar sem vindmælir Guðna sló i 23 m.sek a augabragði.
Þar fór það plan fyrir lítið og nú voru góð ráð dýr og ýmsum möguleikum velt upp,
i samtölum mínum við Svein á Hnúki hafði hann nefnt að ágætis aðstæða til sjóferða og tjald dvalar væri á Ytra Felli sem er nokkrum kilómetrum austar á Fellsströnd, Gunnar Ingi átti heimboð á Harrastöðum sem eru i næsta nágrenni Ytra Fells þannig að við áttum uppi i erminni plan C og D, simanúmer Björgvins á Ytra Felli var grafið upp og hringt, þar gátum við fengið að sjósetja og tjalda ef okkur hugnaðist það.
Þar var veður allt annað hægur vindur og útlitið allt annað en vestan við eyjaklasann, þar sem við vorum alls óundirbúnir fyrir þennan dvalarstað var ákveðið að tjalda og róa dagróðra enda aðstaða þarna góð og salernisaðstaða og vatn i boði gegn vægu gjaldi.
Föstudags seinnipart var róinn stuttur róður inn að Harrastöðum svona til að skoða aðstæður þar, þegar í náttstað var komið var safnast saman i klúbbtjaldinu og spjallað og sagðar sögur, tjaldið er algjör snilld að eiga við svona aðstæður og höfðum við áætlað að taka það út í eyjar ef svo færi.
Laugadagurinn var var nýttur i dagróður i hina áttina, við lofuðum engu en stefndum á að hádegismatur yrði snæddur í Purkey, sem við gerðum. Guðni og Gunnar Ingi leiddu hópinn örugglega milli eyja og hólma. Straumar voru talsverðir ma Knarrarbrjótur sem var á þriðja tíma á útfalli og vel straumharður, vel gekk að fara yfir hann enda öflugur hópur a ferð og var leikið og æft þar um stund áður en haldið var áfram i Purkey, þar tókum við góða hvíld við sumarhús sem stendur við vog að sunnanverðu nokkuð frá gamla bænum þar sem við ætluðum að tjalda ef plan B-gengi eftir.
Á meðan við snæddum og skoðuðum okkur um i eynni voru fallaskipti þannig að við fengum strauminn með okkur a leiðinni til baka sem var skemmtilegt enda mikil ferð á hópnum þegar mest lét en þó ekki meira en svo að allir réðu vel við aðstæður. I lok ferðar fengum við smá bónus þegar við sáum örn og unga á hreiðri tilsýndar.
Síðasta spölinn fengum við svo að kljást við mótvind sem jókst þegar leið á daginn.

Á laugardagskvöldinu var svo eins og vanalega i þessum ferðum hópast saman og grillað eða eldað og varðeldur kveiktur. Við Guðni treystum okkur ekki i skó Reynis og segja sögur og fróðleik um staðinn en höfðum nefnt það við Hildi þar sem hún er mesti sögusnillingurinn i hópnum og hvort hún gæti tekið þann hefðbundna þátt að sér sem hún auðvitað tók vel i en þar sem hún hafi lesið Akureyja sögur má sá þáttur bíða betri tíma.
Sunnudagsróðurinn var skipulagður sem stuttur róður með landi þar sem veðurútlit var þannig að vænta mátti vinds af landi, strax við upphaf róðrar var tekið að hvessa og steypti vindur sér niður fjöllin sem gerði að við fengum ágætis æfingu í að róa i sterkum hliðarvindi og öldu.
Þar og annarstaðar sýndi yngsti þáttakandinn Viktor Kristinnson snilldar takta sem upprennandi mjög öflugur ræðari.

Við höfðum tyggt okkur hjálp öflugra ræðara við hópstjórnun sem gerði að við vorum vel i stakk búnir að takast á við aðstæður sem upp kynni að koma en ekki kom til neina aðgerða enda eins og fyrr sagði mjög öflugur og skemmtilegur hópur.
Ræðar voru Svenni, Hildur, Kolla, Gísli K. Gunnar Ingi, Örlygur, Palli R. Perla, Klara, Þóra, Egill, Hákon, Kristinn, Viktor, Ólafía og Marc.

Frumraun okkar Guðna fór aðeins á annan veg en áformað var en það er víst erfitt að spá til um veðrið þó vera megi að reyndari sæfarar hafi dýpri skilning á veðurspám og hefðu getað séð aðstæður fyrir betur en við, þó svo að Guðni sé ansi leikinn orðin i veðurkorta lestri,
þá erum við nokkuð sáttir við ferðina enda frábærir ferðafélagar með i för.

lg

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum