Félagsróður 30.sept

30 sep 2017 14:26 #1 by gudmundurs
Replied by gudmundurs on topic Félagsróður 30.sept
Þetta varð dásamlegur róður! 9 manns mættu á pallinn í blíðskaparveðri og sléttum sjó. Rörum norður fyrir Geldinganes og þaðan í Lundey hvar áð var í logni og sólskini áður en haldið var í Veltuvík til æfinga. Tókum eina björgunaræfingu á leiðinni.
Að öllu leyti unaðslegur leiðangur.

Gummi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

29 sep 2017 12:29 #2 by gudmundurs
Sæl öll
Ég er skráður róðrastjóri á morgun. Það er ágæt spá, hægur álandsvindur sem gæti þýtt einhver bára af norðvestri. Við ákveðum því róðraleiðina á altaninu og beitum aðferðum lýðræðis og manngæsku í þeirri ákvörðun.

Hlakka til að sjá ykkur!

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum