Félagsróður 01.02.2020

01 feb 2020 12:49 #1 by GUMMIB
Sæl

Undirritaður var Maggi í morgun. Ís takmarkaði möguleika á róðrarleiðum. Reyndum 13 bátar að taka Viðeyjarhring, snerum við þegar komið var að eyjunni sunnanverðri vegna íss. Róið í staðin eftir austurströnd eyjunnar að norðurendanum þar sem snúið var við. Komið í land á sama stað og sjósett var eftir smá barning í gegnum ísskæninn. 

Renniblíða.Endaði  í 8.5 km. sem telst vera löglegt.

Kv.
GUMMIB

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum