Félagsróður 20.ágúst

19 ágú 2020 22:37 #1 by Gunni
Róður að venju, mæting er kl. 18.30 á sjó 19:00.

Veðurspáinn er bara rugl,  stefnum að löngum tíma á sjó,  lengd og kaffistoppi. 
Nesti skilyrði eða ... ekki. 
Háááflóð kl 19:25.
Hæg norðlæg átt létt til, hiti 12 til 16 stig.

Leið ákveðin á palli þó ég hafi von um að komast í Kollafjörð / Arnarhreiðrið
   
Sóttvarnir marka starfið: 
  • Róður er eingöngu fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði eða sambærilegri þjálfun.
  • Notkun búningsaðstöðu verður óheimil í félagsróðrum (komið sjóklár á pallinn)
  • Lánsbátar og árar í boði.
  • Tveggja metra nándarreglan verður virt.
  • Hámarks bátafjöldi á palli er 10 bátar. 
  • Ath. há flóðastaða verður og því lítið pláss fyrir bíla og báta utan palls.
  • Einhverjir verða settir fyrr út á sjó

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum