Félagsróður 27. febrúar

27 feb 2021 15:47 #1 by Páll R
Enginn öflugustu ræðara klúbbsins mætti í morgun, nema við teljum Guðna, Gumma B. og Bjarna með, en þeir kíktu aðeins í heimsókn. Hins vegar mætti ég og tveir nýliðar, þeir Arnar og Viðar. 
Áhugi þeirra fékk mig til að setja á flot með þeim. Reyndar var þetta þeirra fyrsta sjóferð hér á kajak.
Aðstæður voru ekki beint fyrir byrjendur. Okkur gekk þó ágætlega, vindalda var lítil en vindhviður gerðu okkur skráveifu og einn hálfsnúningur var tekinn.

Páll R

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum