Úrslit í Reykjavíkurbikar - vel heppnuð Vorhátíð

02 maí 2010 16:45 #1 by Heida
Allataf jafn gaman að komast á flot ;) Ekki skemmdi fólkið, veðrið né gómssæta pylsan fyrir gleiðinni.

Takk fyrir mig og kærar þakkir fyrir gír-lánið palli. :)

Sjáumst í sumar
Heiða

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 maí 2010 16:43 #2 by Hilmar E
Takk fyrir mig.

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið skrautleg byrjun á sumrinu hjá mér, ég er búinn að smíða nýja fótspyrnu í Rapierinn með stýrispetulum. En nú þegar ég þarf að senda bátinn á milli reif ég allt í sundur og hafði lítinn tíma til að stilla og prófa fyrir keppnina,það virðist hafa tognað á einhverju hnútum og spottum þannig að báturinn beygði bara til hægri,eftir það missti ég forskotið sem ég hafði náð og þurfti að fara í land. Þá var bara spurning um að klára og einbeitningin ekki alveg á réttum stað þannig að ég fór á hvolf við eyjuna með svuntuna opna. Báturinn fylltist af vatni svo ég hugsaði með mér að fyrst að það var smá í næsta mann að fara aftur í land og tæma hann. Eftir það gekk þetta ágætlega,mjög skemmtileg keppni og lærdómsrík. Bestu þakkir til allra sem stóðu að henni, þetta var allt til fyrirmyndar.

Hilmar

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 maí 2010 11:52 #3 by Ingi
Þetta var hörkukeppni eins og við var að búast. Menn og konur spændu af stað í vestur frá eiðinu og hurfu fljótlega út og undir sjóndeildarhringinn. Óli og Hilmar voru komnir úr kallfæri strax við vesturendann á Geldinganesinu og Páll seiglaðist á eftir þeim og dró frekar í sundur á milli hans og okkar hinna þegar vestan vindaldan byrjaði að trufla annars fullkomin árataktinn hjá keppendum. Smá lens var norðan nessins og gaman að lóbreisa og halla sér fram í bátnum þegar aldan lyfti undir. Sólskin og blíða var austanmegin eiðis en smá NA vindur á leggnum austureftir að hólmanum. Það verður að segja eins og er að við erum mikið heppin að geta róið í þessu umhverfi eins fjölbreytt og það er. Á þessum stutta kafla var fínn vestan blær sem náði varla að gera annað en að gára yfirborðið og svo við endann á nesinu kom alda sem gerði örlitlar kröfur um jafnvægi og svo lensið sem var ljúft og ekki of mikið en skemmtilegt rennerí. Einhver straumur hefur verið í vestur norðan við Geldinganesið en hann hafði ekki mikið að segja nema kannski var aðeins krappari alda við endann á Geldinganesinu fyrir bragðið. Sólfarsvindur gerði vart við sig á leggnum út í hólminn. Allavega var ákveðin NV átt þarna alveg austast á þeim legg. Fín keppni og góðar veitingar í lokin. Æfingin sem Stjörnuræðarnir héldu var svo rúsínan í pylsuendanum. Takk fyrir mig.

Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 maí 2010 08:31 #4 by Rúnar
Jamm, nokkrir framleiðendur hafa þegar haft samband og spurst fyrir um hvort þeirra bátar hafi ekki örugglega verið framarlega í 3 km róðrinum en árangur í Reykjavíkurbikarnum skiptir víst höfuðmáli í markaðsstarfi þeirra.

Svo verður víst að skrá menn á heimasíðuna með fullu nafni svo úrslitin komi örugglega fram þegar nöfn þeirra eru gúgluð á alnetinu ...

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 maí 2010 22:21 #5 by Sævar H.
Já þetta var glæsilegt Reykjavíkurbikarmót. Ég sé að skráning hefur ekki staðist endurskoðun . Keppendur ekki að fullu feðraðir og eða heimsfrægra kayakframleiðenda ekki getið. Keppendur eru beðnir að virða þetta til betri vegar og koma upplýsingum til Rúnars mótsstjóra.
Takk fyrir skemmtilegan kayakdag. :P

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 maí 2010 22:03 #6 by Rúnar
Ólafur B. Einarsson fremstur

Reykjavíkurbikarinn og Vorhátíðin gengu aldeilis blessunarlega vel. 15 sjófuglar tóku þátt, þar af fjórir í 3 km róðri. Í ljósi þess að strembið BCU-prógramm kláraðist á föstudag (og BCU-stjörnurnar voða þreyttar) er ekki hægt að vera annað en ánægður með þátttökuna.

Ólafur B. Einarsson var fyrstur í mark. Hann hlaut harða keppni frá Hilmari Erlingssyni framan af en Hilmar missti af Ólafi þegar hann þurfti að laga stýrið á Rapiernum, skömmu áður en hann kom að beygjubaujunni, austan við Eiðið. Þetta var þó bara "small rehearsal" því við eyjuna hvolfdi Rapiernum algjörlega upp úr þurru og varð Hilmar að draga Rapierinn á þurrt.

Páli Reynissyni sem fylgdi fast í kjölfar Hilmar tókst þó ekki að nýta sér þessi óvæntu óhöpp til að stela öðru sætinu af Hilmari og varð Páll því í 3. sæti. Þessi árangur Páls er eftirtektarverður fyrir ýmsar sakir, m.a. þær að hann rær NDK Explorer High Volume, fullvöxnum leiðangursbát og að í gær setti hann persónulegt met á róðraleiðinni. Fyrir einhverjum árum var reynt að koma Páli og jafnöldrum í e.k. eldrimannaflokk en það var greinilega algjör vitleysa. Páll er augljóslega landsliðsmaður!

Heiða Jónsdóttir vann kvennaflokkinn í 10 km. Guðrún Gunnarsdóttir, keppinautur Heiðu, varð að hætta keppni því #$%&#&&-vængárin var leiðinlega stór og Inukinn, sem hún var víst að prófa í fyrsta skipti, óþægilega óstöðugur. Nokkur alda var við vesturenda Geldinganess.

Sigurvegari í 3 km karla var Össur Imsland. Katla Gunnarsdóttir tók gullið í kvennaflokki en Katla keppti í dag eftir um tveggja ára hlé frá kayakróðri. Velkomin aftur Katla, segjum við nú bara!

Kayakmenn ársins 2009

Á Vorhátíðinni voru afhendir Íslandsmeistarabikarar árið 2009 sem ekki komust í réttar hendur í fyrra. Varla þarf að rifja það upp að Ólafur B. Einarsson og Heiða Jónsdóttir urðu Íslandsmeistarar 2009.

Páll Gestsson, formaður Kayakklúbbsins, tilkynnti síðan hverjir hefðu orðið fyrir valinu sem sjókayakmaður og straumkayakmaður ársins 2009. Gísli H. Friðgeirsson, hringfari, er sjókayakmaður ársins. "Hann braut blað í kayaksportinu hér á landi, sagði Páll Gestsson áður en hann afhenti Gísla blómvönd. Hann mun einnig hafa kysst hann létt á kinnina, en það hefur þó ekki fengist staðfest.

Heiða Jónsdóttir var valin straumkayakmaður ársins 2009, m.a. í krafti þess að hún hefur verið dugleg við að keppa, bæði í straumi og á sjó, en konur hafa verið óþarflega fágætar í keppnum. Í þessu tilviki er kossaflens eftir blómaafhendingu staðfest mál.

Rúsínan í pylsuendanum var þyrluæfing með Gæslunni. Lárus Guðmundsson stjórnaði æfingunni af jörðu niðri og lék sjórekinn, hálfdauðann, ískaldann, fótbrotinn, hryggbrotinn, nefbrotinn og sjónskertann kayakmann sem hafði rekið í 4 klukkustundir með eftirtektarverðum tilþrifum. Engin furða að Lárusi var strax skúbbað upp í þyrluna en honum var svo skilað snarlega niður þegar Gæslan sá að þetta var bara plat.

Keppnisnefnd þakkar keppendum fyrir drengilega keppni og áhorfendum fyrir að mæta og hvetja sitt fólk.

Sævar Helgason sá um skráningu og var tímavörður. Björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi sá um brautargæslu. Fleiri lögðu hönd á plóginn, m.a. Gísli Karlsson sem var um tíma pulsustjóri og Pétur B. Gíslason var mættur sem fulltrúi kærunefndar. Gísli var auk þess einn þeirra sem bjargaði vestari baujunni, þeirri sem merkir staðinn þar sem keppendur í 10 km eiga að snúa. Steinninn sem hún var bundin í hafði ekki náð festu og því flaut hún af stað í austurátt, frá landi. Alls þurfti þrjá menn á sjó til að bjarga baujunni en mótstjóra láðist að rita niður nöfn þeirra sem afrekið unnu. Baujumálið fer pottþétt fyrir atvikanefnd.

Hér eru úrslitin - þau verða birt aftur á læsilegri hátt.

Athugið að mig vantar eitt föðurnafn og upplýsingar um bátagerð þeirra sem reru 3 km. Gott væri ef þessar upplýsingar kæmu til mín í pósti runar.palmason@gmail.com - eða í svari á korknum.


Reykjavíkurbikar, laugardaginn 1. maí.
Karlar - 10 km
1 Ólafur B. Einarsson Ocean X 0:59:18
2 Hilmar Erlingsson Valley Rapier 1:07:00
3 Páll Reynisson NDK Explorer HV 1:08:38
4 Sigurjón Sigurjónsson NDK Greenlander Pro 01:12:30
5 Þorbergur Kjartansson Point 65° 505 01:13:40
6 Guðmundur J. Björgvinsson Quajac Sardina 01:19:15
7 Ágúst Ingi Sigurðsson Heimasmíði 01:19:35
Einar Garðarsson Point 65° XP Hætti keppni

Konur - 3 km
1 Heiða Jónsdóttir Quajac Kitiwec 01:21:50
Guðrún Guðmundsdóttir Kirton Inuk Hætti keppni

Karlar 3 km
1 Össur Imsland Vantar upplýsingar 22:16
2 Kristján Viggósson Vantar upplýsingar 23:07
3 Einar Sveinn ....son Vantar upplýsingar 24:15

Konur - 3 km
1 Katla Gunnarsdóttir Vantar upplýsingar 28:55

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum