Fréttabréf Kayakklúbbsins 2007 !!

08 maí 2007 18:26 #1 by Ingi
Var að sjá Málgagnið. Flott blað og til sóma :cheer: Takk.
Kveðja,
Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 maí 2007 12:25 #2 by Sævar H.
Flott að lesa þetta--bíð spenntur efti eintaki innum bréfalúguna:P

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 maí 2007 04:36 #3 by palli
Jamm - þetta kom úr prenti á föstudaginn og fyrsti skammtur fór volgur úr prentvélinni á veiðisýninguna í Smáralind. Fer í póst í dag, mánudag, og þið ættuð því ekki að þurfa að bíða svo lengi við lúguna.
Vil koma bestu þökkum til allra sem sendu inn efni, þetta hefði orðið heldur rýrt án þess.
Við búum svo vel í ritnefndinni að vera með grafískan hönnuð innanbúðar, Sveinbjörgu, en hún og Dagrún (minn betri helmingur) sáu að langmestu leyti um þessa vinnu. Meir að segja auglýsingasöfnun sem fer langt með að dekka prentkostnaðinn. Rúnar stóð sig vel í prófarkarlestri en ég sjálfur var aðallega með óþarfa ábendingar og almennt vesen eins og mér er tamt.
Þeir sem eru ekki búnir að fá eintak í lok vikunnar, en hafa á því áhuga, geta sent rafpóst á kayakklubbur@gmail.com og fengið eitt slíkt um hæl. Fljótlega setjum við líka pdf eintak hér á heimasíðuna.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 maí 2007 01:28 #4 by Halli.
Sammála!, ritefndin hefur enn og aftur skilað af sér afspyrnu fínu blaði, líkist frekar fínu glanstímariti en fréttabréfi,og er kúbbnum sannarlega til sóma. Til hamingju með þetta!

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

06 maí 2007 22:18 #5 by Steini
Glæsilegt fréttabréf Kayakklúbbsins 2007 er komið út, sá það á sýningunni í Vetragarðinum, ritnefnd og allir sem að útgáfunni komu eiga heiður skilið. Mér skilst að félagsmenn fá það í pósti eftir helgi, svo þið getið nú beðið spennt við bréfalúguna !!

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum