May be an image of 1 person, newsroom and text

Hvað gerum við í neyð og af hverju ferðast fólk til Chile til að fara á kayak?

Þessum spurnning ætlum við að reyna svara þriðjudaginn 12. nóvember nk. kl.19-21 í flugskýli nr.2 hjá Landhelgisgæslunni í Nauthólsvík. ( Þetta er nýja skýlið).

Auðunn F. Kristinsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar (og fyrrum björgunarsveitarmaður, stýrimaður á varðskipum, sigmaður á þyrlum gæslunnar og margt fleira) ætlar að ræða við okkur kayakfólkið hvaða viðbragð er til staðar í neyð á Íslandi ef til neyðarástands kemur á sjó og í straumvatni.

Við hverjum megum við búast, hvað líður mögulega langur tími þar til fyrsta hjálp skilar sér, hvaða möguleikar eru í fjarskiptum til að koma neyðarboðum áleiðis.

Virkar að ýta á neyðarhnapp á Garmin InReach tækinu og ef svo er þá hvert fara boðin og hvað líður langur tími þar til boðin berast íslenskum viðbragðsaðilum.

 

Síðan ætlar Jóhann straumvatnsmaður að segja okkur frá ferð nokkra félaga til Chile síðasta sumar þar sem þau fóru í mikla ævintýraferð. Þetta er ferðasaga sem er langt út fyrir boxið hjá mörgu kayakfólki og því spennandi að sjá hvernig þau báru sig að því að ferðast frá norðurhveli jarðar í átt að suðurhveli með allan búnað.


Þurftu þau að fá leyfi, komst búnaður heill á leiðarenda, var brjálæðislega dýrt? Allt þetta og meira til ætlar hann að segja okkur frá.Við ætlum að gera heiðarleiga tilraun að vera með viðburðinn í streymi, það kemur inn linkur hér þegar nær dregur.


En það er best að mæta til að heyra og sjá allt sem best og geta spurt spurninga.Fyrir þá sem mæta þá mun okkur bjóðast að skoða eins og eina þyrlu (ef þær eru ekki í verkefni) þannig að það borgar sig að mæta.