Ólafur Íslandsmeistari karla á sjókayak

Ástæðan fyrir því hversu úrslit í Íslandsmeistarakeppninni eru sett seint inn eru sú að skera þurfti úr á milli efstu manna, þ.e. Ólafs B. Einarssonar og Halldórs Sveinbjörnssonar með hlutkesti. Ólafur hafði betur í hlutkestinu og er því réttkrýndur Íslandsmeistari.

Staðan var sú að Ólafur var fyrstur í mark á keppnisbát (brimskíði) í Reykjavíkurbikar og Reykjaneskeppni. Halldór varð fyrstur í mark á sjóbát (Kirton Inuk) í Reykjavíkurbikar og Reykjaneskeppni. Gert hafði verði ráð fyrir að úrslit myndu ráðast í Hvammsvíkur-maraþoninu. Þar mætti Ólafur til keppni en ekki Halldór. Svo illa vildi til að Ólafi tókst ekki að ljúka keppni, en hann fékk afar slæma krampa á síðasta leggnum, og þar með fékk hann engin stig. Keppendur hafa ekki fengið stig nema þeir komist í mark, fyrir því er hefð (sem hugsanlega þarf að endurskoða - í siglingakeppnum

Því þurfti að beita ákvæði í 9. grein keppnisreglna, þ.e. að varpa hlutkesti. Um það sá Haraldur Njálsson. Á fundi hans, Ólafs og Guðna Páls Viktorssonar í Perlunni í gærkvöldi var varpað tening. Ólafur myndi bera sigur úr býtum ef upp kæmi jöfn tala en Halldór fékk oddatölurnar. Upp kom tala sex og þar með vann Ólafur.

Það er auðvitað ekki besta lausnin að skera úr í svona málum með hlutkesti. Enginn möguleiki var þó á öðru og Úlfur hjá Siglingasambandinu var því sammála. Í þessu tilviki urðu nýjar reglur um flokkaskiptingu þess valdandi að hlutkesti skar úr um, en ekki keppni. Eins og sagt var í vor þá ætlaði keppnisnefnd sér að meta reynsluna af þessum reglum að keppnistímabili loknu og það mun hún gera.

Eins og undanfarin ár hefur verið fremur lítill áhugi á róðrakeppnum meðal kvenna. Allt stefndi í að Auður Rafnsdóttir hreppti titilinn en hún var sú eina sem hóf keppni í Hvammsvíkurmaraþoni í kvennaflokki. Því miður varð hún að hætta keppni á Kjalarnesi. Ástæðan var sú að hún var óvön fleyinu en miðað við reynslu hennar af löngum keppnum var fastlega búist við að hún myndi klára. Okkur hlakkar til að sjá þennan öfluga ræðara í maraþoninu að ári. Við lofum kjötsúpu!

Úr því að Auður lauk ekki keppni er staðan sú í kvennaflokki að þrjár konur eru efstar og jafnar, hver og ein með 100 stig. Hver og ein þeirra keppti aðeins í einni keppni en ekki liggja fyrir innbyrðis úrslit þeirra á milli.  Það bíður keppnisnefndar að hafa samband við þær og ákveða hvenær varpað verður hlutkesti til að skera úr um Íslandsmeistaratitilinn. Og var þó flokkaskipting báta ekki að flækja málið. Svona er lífið stundum ...

Keppnisnefnd þakkar öllum þeim sem tóku þátt í keppnum sumarsins. Um er að ræða 24 karla og sjö konur. Einnig fjóra unglinga sem stóðu sig vel í keppninni fyrir austan.

Hér er staðan, bæði í bátaflokkum og lokastaðan í Íslandsmeistarakeppninni.

Íslandsmeistarakeppni - karlaflokkur      
Bátstegund Reybikar Reykjanes Sprettur Maraþon Samtals
1 Ólafur B. Einarsson Stellar brimskíði 100 100   200
2 Halldór Sveinbjörnsson Kirton Inuk 100 100   200
3 Örlygur Steinn Sigurjónsson Lettman Godthap/Kirton Inuk 45   100 145
4-5 Eymundur Ingimundarson Valley Aquanaut/Valley Rapier 60   80 140
4-5 Pétur Hilmarsson Kirton Inuk 80 60   140
6-7 Þorsteinn Sigurlaugsson  Valley Rapier    100  100
6-7 Ari Benediktsson  Valley Nordkapp   100  100
8 Páll Reynisson NDK Explorer HV 36   60 96
9 Rúnar Pálmason Valley Nordkapp/Valley Rapier 40   45 85
10 Þorbergur K Quajaq Sea Wolf 32   50 82
11-12 Bjarki Rafn Albertsson  Kajaksport Viviane   80  80
11-12 Gudni Páll Viktorsson Kirton Inuk  80   80
13 Pétur Már Hjartarson  Bátstegund vantar   60  60
14-16 Guðmundur Breiðdal Kirton Inuk 50    50
14-16 Júlíus Albertsson  www.kajaksmidjan.net 50  50
14-16 Örn Torfason Kirton Inuk  50   50
17-18 Ágúst Ingi Valley Nordkapp  45   45
17-18 Reynir Svavar Eiríksson  Hassle Explorer    45  45
19 Rafn Pálsson. Valley Nordkapp  40   40
20 Össur Imsland NDK Explorer 29    29
21 Valdirmar H Valley Aquanaut 26    26
22 Egill Þorsteinsson NDK Explorer 24    24
23 Steffan I Point °65 22    22
24 Þórólfur Matthíasson Quajaq Viking 20    20

 


Flokkur keppnisbáta - karlar      
Bátstegund Reybikar Reykjanes Sprettur Maraþon Samtals
1 Ólafur B. Einarsson Stellar brimskíði 100 100   200
2 Þorsteinn Sigurlaugsson  Valley Rapier    100  100



Flokkur ferðabáta - karlar      
Bátstegund     
1 Halldór Sveinbjörnsson Kirton Inuk 100 100   200
2 Örlygur Steinn Sigurjónsson Lettman Godthap/Kirton Inuk 45   100 145
3-4 Eymundur Ingimundarson Valley Aquanaut/Valley Rapier 60   80 140
5 Pétur Hilmarsson Kirton Inuk 80 60   140
6 Ari Benediktsson  Valley Nordkapp   100  100
7 Páll Reynisson NDK Explorer HV 36   60 96
8 Rúnar Pálmason Valley Nordkapp/Valley Rapier 40   45 85
9 Þorbergur K Quajaq Sea Wolf 32   50 82
10-11 Bjarki Rafn Albertsson  Kajaksport Viviane   80  80
10-11 Gudni Páll Viktorsson Kirton Inuk  80   80
12 Pétur Már Hjartarson  Bátstegund vantar   60  60
13-15 Guðmundur Breiðdal Kirton Inuk 50    50
13-15 Júlíus Albertsson  www.kajaksmidjan.net 50  50
13-15 Örn Torfason Kirton Inuk  50   50
15-16 Ágúst Ingi Valley Nordkapp  45   45
15-16 Reynir Svavar Eiríksson  Hassle Explorer    45  45
17 Rafn Pálsson. Valley Nordkapp  40   40
18 Össur Imsland NDK Explorer 29    29
19 Valdirmar H Valley Aquanaut 26    26
20 Egill Þorsteinsson NDK Explorer 24    24
21 Steffan I Point °65 22    22
22 Þórólfur Matthíasson Quajaq Viking 20    20

 


Flokkur ferðabáta - konur      
Bátstegund Reybikar Reykjanes Sprettur Maraþon 
1-3 Helga Einarsdóttir Sea Wolf  100   100
1-3 Helga Hrönn Melsteð  NDK Explorer    100  100
1-3 Þóra Atladóttir NDK Explorer 100    100
4-5 Arndís Jónsdóttir Sardinia L.  80   80
4-5 Hrefna Ingólfsdóttir  NDK Romany    80  80
6 Rán Höskuldsdóttir Kittiwek  60   60