Fyrsta sprettkeppni Kayakklúbbsins fór fram laugardaginn 28. maí og segja má að allir hafi farið heim með bros á vör og nokkuð ljóst að þessi keppni er komin til að vera.

Allir keppendur notuðu eins kayaka,Valley Aquanaut Club og eins árar.

 

Fjórar konur og tíu karlar kepptu, konur í einum riðli en karlar í tveimur. Þar sem þetta var frumraun í svona keppni, 300 metra braut fram og til baka, kom nokkuð á óvart hve erfitt þetta var. Sérstaklega reyndi á menn þegar snúa þurfti 180 gráður og vera fljótur að og einnig var nokkuð krefjandi að hafa smá hliðarvind.

En myndir tala sínu máli:
Sigurjón
Sævar

Karlar 600 metrar
Röð í flokki Nafn Tími
1 Sveinn Axel Sveinsson 04:00:00
2 Ólafur Einarsson 04:01:00
3 Gunnar Ingi Gunnarsson 04:07:00
4 Eymundur Ingimundarson 04:15:00
5 Vigfús Vigfússon 04:29:00
6 Þorbergur Kjartansson 04:36:00
(gestur) Maotinn Hauffman 04:38:00
7 Daníel Pálsson 04:48:00
8 Ingi Tómasson 04:58:00
9 Andri Arinbjörnsson 05:21:00

 

Konur 600 metrar
Röð í flokki Nafn Tími
1 Þóra Atladóttir 04:23:00
2 Klara Bjartmarz 04:37:00
(Gestur) Karin Åmossa 04:46:00
3 Björg Kjartansdóttir 05:08:00