Fyrir hvern er Kayakklúbburinn?
Alla þá sem hafa dálæti á kayakróðri á sjó, vötnum og straumám. Sama hvort þú ert á sjókayak, Sit on Top, surfskíði eða straumkayak.
Fyrir hverja eru félagsróðrar Kayakklúbbsins?
Fyrir þá sem vilja róa í frábærum félagsskap um sundin blá og eru orðnir 18 ára.
Æskilegt að hafa farið á námskeið en ekki krafa.
Félagsróðrar eru ókeypis skemmtun fyrir meðlimi Kayakklúbbsins og nýliða.
Hvenær eru félagsróðrar Kaykaklúbbsins?
Sumartími: Maí - September
Fimmtudaga kl 18:30
Vetrartími: Október-Apríl
Laugardaga kl 09:30
Þarf ég að eiga kayak til að taka þátt í félagsróðrum?
Kayakklúbburinn lánar afnot af klúbbátum fyrir meðlimi.
Einnig er hægt að fá afnot af árum, svuntum, blautgöllum og vatnsheldum toppum.
Búnaðurinn er hugsaður fyrir byrjendur og við hvetjum þá sem vilja stunda sportið til að koma sér upp eigin búnaði með tíma og ástundun.
Hvað kostar að vera meðlimur að Kaykaklúbbnum?
Árgjald kostar 8.000 kr fyrir einstaklinga.
Greiðsluseðlar fyrir árgjaldið eru sendir í heimabankann á vorin.
Get ég geymt kayakinn minn hjá klúbbnum?
Kaykaklúbburinn býður upp á leigugeymslu fyrir kayaka klúbbmeðlima.
Geymslur eru í Geldinganesi og í Nauthólsvík.
Ársgjald fyrir geymslu á sjókayak er 13.000 kr.
Athugið að einnig þarf að greiða klúbbaðild til að tryggja rétt á geymslu.
Hvernig greiði ég fyrir klúbbaðild?
Nýskráning í klúbbinn er gerð hér í kerfi Abler.