Þríþraut á sunnudag

12 jún 2007 00:13 #1 by Gíslihf
Replied by Gíslihf on topic Re:Þríþraut á sunnudag
Þetta var skemmtilegt verkefni og ég minnist þess nú í hverju skrefi með eymslum eftir Esjuna:(
Ég vil þakka Óla eiginmanni Ólafíu sérstaklega fyrir þjónustuna við að gæta báta og búnaðar - og annast grill og meðlæti.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

11 jún 2007 19:43 #2 by Sævar H.
Replied by Sævar H. on topic Kayakferð á Esjuna
Það eru ýmsar nýjungar í kayaksportinu þessa dagana.
Ein af þeim er þríþraut sem efnt var til sunnudaginn 10.júní 2007. Þar var tekist á við hjólhestinn og hjólað frá Elliðaárbrú og inn í Geldinganes og í framhaldi af því var róið frá Geldinganesinu og lent neðan við bilastæðið þar sem Esjugöngufarar leggja reiðskjótum sínum meðan gengið er á fjall. Við vorum ein sjö sem lögðum í þrekvirkið. Þegar lent var við Mógilsána var skipt um nær allan fatnað...sjógallinn fór í lestina og fjallgöngugallinn á kroppinn og síðan var haldið á Esjuna. Gangan á Þverfellshornið gekk vel og var smellt mynd af afreksfólkinu á toppnum.
Þegar niður var komið af fjallinu var farið í fataskápinn í lestinni og fjallagallanum skipt út fyrir sjófötin og að því búnu var róið inn í Geldinganes. Þar beið okkar grillveisla að hætti hjólreiða/sjóferða og fjallgöngufólks... kjarnmikill matur.
Þessi uppákoma heppnaðist með eindæmum vel og er henni Ólafíu og hennar manni þakkað fyrir tiltækið.
Meðfylgjandi mynd er af innsiglingunni að upphafsreit fjallgöngunnar á Esjuna
<br><br>Post edited by: Sævar H., at: 2007/06/11 15:50
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

08 jún 2007 13:57 #3 by Sævar H.
Spennandi uppákoma. Veðurútlit á sunnudag er mjög gott. Stuttbuxnaveður til hjólreiða og fjallgöngu en hefðbundinn fatnaður til sjós.:silly:
Stefni á að mæta.:P <br><br>Post edited by: Sævar H., at: 2007/06/08 10:01
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 jún 2007 14:55 #4 by Steini
Replied by Steini on topic Re:Þríþraut á sunnudag
Skemmtileg uppákoma ! en verð því miður fjarri góðu gamni ;)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 jún 2007 03:20 #5 by Reynir Tómas
Þríþraut sunnudaginn 10. júní 2007

Hjól - Róður - Fjallganga

Nýr dagskrárliður með alhiða og hæfilegri áreynslu! Veðurspáin fyrir sunnudaginn er góð. Mæting er fyrst með hjólin við brúna yfir Elliðaárnar við Geirsnef kl. 9.00 og hjólað í Geldinganes.
Kl. ca. 10.00 - 10.30 er róið úr Geldinganesi inn í Kollafjörð. Mæta má beint í Geldinganesið og jafnvel Kollafjörðinn.
Kl. ca. 11.30 - 12.00 verður gengið á Esjuna og má gera ráð fyrir að gangan taki allt að 3 klst. með öllu (upp, niður, skipta um föt og næra sig).
Kl. ca. 14.30-15.00 verður róið til baka í Geldinganes og kl. ca. 15.30 - 16.30 er komið í land þar.

Ath. Allar tímasetningar, nema brottför frá Elliðaánum, geta verið talsvert breytilegar, allt eftir getu hvers og eins, en munið að tryggja ykkur róðrarfélaga !!

Grillað verður við aðstöðu klúbbsins í Geldinganesi að þríþraut lokinni (kr. 500/mann).

Eigin tímataka er á hvern legg sem svo er skráð og gefin upp fyrir hvern áfanga sm lokið er að fullu.

Taka má þátt í einum, tveimur eða öllum þremur liðunum, eins og hver vill. Takið gjarnan fjölskylduna með í það sem hún treystir sér, t.d. hjólaliðinn eða gönguna á Esjuna.

Þeir sem ganga á Esjuna geta farið alla leið upp á Þverfellshorn, upp að \&quot;Stóra steini\&quot; (um 2/3 leiðarinnar upp), eða eins og hver og einn hefur áhuga á.

Séð verður um að passa bátanna í Kollafirði á meðan félagar ganga á fjallið.

\&quot;Hljómsveit hússins\&quot; slær fjöruga sjómannahljóma við aðstöðuna í Geldingarnesinu á meðan við grillum og njótum dagsins.

Munið að taka með ykkur gönguföt og gönguskó, nesti til að bæta á sig fyrir og eftir fjall, og nóg að drekka.

Skráning (mikilvæg vegna grillsins) í síðasta lagi á hádegi á laugardag hjá Ólafíu Aðalsteinsdóttur s. 862-2863 og Reyni T. Geirssyni s. 824-5444 eða marest@tv.is.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum