Kvikmyndaver í Gufunesi

04 jún 2017 23:29 #1 by Ingi
Replied by Ingi on topic Kvikmyndaver í Gufunesi
það er alveg ástæða fyrir okkur að vera á verði. En ég á bágt með að trúa því að menn leggi í auka kostnað við að búa til landfyllingu útfyrir Fjósakletta. En ef að eitthvað verður gert þarna ætti það að vera endurbygging á bogaklettinum sem var þarna áður. Það ætti nú ekki að vefjast fyrir verkfræðingum í dag.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 jún 2017 23:17 - 03 jún 2017 23:20 #2 by Gíslihf
Í laugardags Mbl. má lesa að kvikmyndaþorp eigi að rísa í Gufnesi og á starfsemi að hefjast fyrir áramót, nýtt deiliskipulag verði tilbúið í haust. Á yfirlitsmynd má sjá veg á landfyllingu út í sjóinn og ekki er haft fyrir því að láta hina einstöku Fjósakletta vera með á myndinni. Það er engin ástæða til að ætla að náttúrunni verði hlíft nú frekar en fyrr við strandlengjuna umhverfis Reykjavík.
Við getum bent á gildi fjörunnar og þeirra klettamynda sem þar eru, á náttúrúlegt aðgengi að fjörunni fyrir almenning og fyrir sjósport, með lágmarks inngripi í umhverfið. Ég er til í að skrifa greinar í Mbl. og Fréttablaðið með samráði við einhver ykkar , senda athugasemdir um skipulag eða gera eitthvað annað.

Á ekki einhver fallegar myndir af Fjósaklettum og landinu þar á móti? Er einhver úr okkar hópi kunnugur þessari þróunar og skipulagsvinnu?
The following user(s) said Thank You: Klara

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum