Félagsróður 2.des

03 des 2017 10:50 - 03 des 2017 10:53 #1 by Össur I
Replied by Össur I on topic Félagsróður 2.des
Þetta var frábær róður hjá okkur
HÉR er smá videoklippa
Þessa 5,2 km sem fóru í bókina mættu að mín mati margfalda að minsta kosti með PÍ

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

02 des 2017 13:11 #2 by SAS
Replied by SAS on topic Félagsróður 2.des
Veðurspáin var rétt, nema hvað vindurinn var meiri,12-16 m/s. Ætlunin var að róa Geldinganeshring réttsælis,en þegar við vorum komnir vestur fyrir Gnesið, þá var aldan mjög há og brotnandi vestan Gnes. Þannig við héldum aðeins áfram í átt að vestur enda Viðeyjar, og snérum svo við og lensuðum sömu leið til baka.
5,2km fóru í bókina að þessu sinni.

Þeir sem réru: Sveinn Axel, Páll R, Egill og Össur

kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 des 2017 13:19 - 01 des 2017 16:06 #3 by SAS
Félagsróður 2.des was created by SAS
Verð róðrarstjóri á morgun í forföllum Guðna Páls

Veðurspáin er nokkuð vindasöm, SVS 12 m/s og 5 stiga hiti. Fjara kl 11:18
Mögulega verður hægt að finna öldu við skerin sunnan Viðeyjar

Endanleg róðrarleiðin verður ákveðin á pallinum

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum