Áður auglýst ferð um næstu helgi, 3.-5. júlí við Arnarstapa og Hellnar fellur því miður niður vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Þetta verður að öllum líkindum eina skipulagða ferðin sem fellur niður í sumar, en umræður um málið má sjá á korkinum okkar hér .
Næsta laugardag 27. júni verður hin netta keppni og kayakgleði í Tungufljóti sem er class III+ á, þar sem allir straumvatnsræðarar eru hvattir til að mæta til að sýna snilli sína og útgeislun.
Þó eru kayakstelpurnar og þá sérstaklega meðlimir í kvennfélaginu Báruni boðnar velkomnar.
Þeir sem eru byrjendur í sportinu eru hvattir til að mæta og fylgjast með "vönum mönnum" taka á honum stóra sínum.
Keppnin mun hefjast seinni part laugardagsins þegar flestir af raft gædunum eru búnir að vinna, en fram að þeim tíma er öllum frjálst að róa það sem þeim lystir, hvort heldur það er í Hvítá eða Tungufljóti.
Umsjón með atburðinum er í höndum Gumma og er síminn hjá honum 899-7516
Next saturday 27.jun is a kayak Whitevater river race in Tungufljót where most of local paddlers in Iceland vill meet just to have fun and have nice time in the whitavater.
Tungufljót is a beautiful class III+ river in the backyard´s of the famos "Gullfoss and Geysir" about 100km from Reykjavik´
Contact Gummi GSM:899-7516 for more information
Næst á dagskrá ferðanefndarinnar er Jónsmessuróður í Hvammsvík í Hvalfirði, n.k. þriðjudagskvöld.
Það verður ekki sama fyrirkomulag og síðustu ár, grilli og brennu sleppum við, en tökum lengri róður þess í stað. Mæting er kl. 20:00 stundvíslega í sandfjöruna í Hvammsvík, við flotbryggjuna.
Róður hefst 20:30, róum yfir í Hvítanes, yfir í Þyrilnes, kringum Geirshólma og til baka aftur. Skoða má hvort hluti eða allur hópurinn taki ca. 1,5 km krækju yfir í Hvalstöðina.
Gera má ráð fyrir að róðurinn taki um 4 klst, en þetta eru um 13 km róður en með Hvalstöðvarkrækjunni 16 km.
Langtímaveðurspá er góð, sem þýðir að þetta er róður sem hentar öllum félögum og gestum Kayakklúbbsins sem hafa tekið byrjandanámskeið eða róið lítillega.
Minnum alla þátttakendur á öruggisstefnuna, sem er aðgengileg á vefnum okkar undir "Klúbburinn", en að sjálfsögðu verður öryggisstefnunni fylgt.
Vinsamlega bókið þátttöku með e-mail á sveinnaxel@gmail.com eða í síma 660-7002.
kveðja
Ferðanefnd Kayakklúbbsins