Veður var bjart en sólarlaust, hiti við frostmark, stillt en þó austan gola, flóð fyrir hádegið og stutt að bera keipa til sjávar.
Svolítil hálka var á pallinum og fjörusteinum. Fjórtán ræðarar fóru á sjó og lögðu Þerneyjarhring að baki án þess að svitna að nokkru marki.
Leiðin lá rangsælis um eyjuna og kaffi og sögustund var haldin í víkinni vestan í Þerney. Ég ræð fólki með beinþynningu og þeim sem er illa við á láta sjá á sér marbletti - frá því að stunda ferðir á markeip, því að gera verður ráð fyrir byltum í blautum fjörum á þangi eða ísuðum klöppum.

Þerney mun bera nafn sitt af kríunni, sem einnig hefur verið kölluð þerna. Það líkist mjög einu erlendu heiti hennar sem er "arctic tern". Því var einnig velt upp að þerna var algengt starfsheiti hér áður fyrr á Gullfossi og öðrum farþegaskipum og er líklega enn notað á Herjólfi . Fyrir þernur í flugi varð hins vegar ofan á hið rómantíska starfsheiti sem endar á -freyja.
Ekki er vitað til að skemmtiferðaskip hafi komið við í Þerney, þannig að ósennilegt er að nafnið sé þaðan komin. Þó ber þess að geta að Þerney og Þerneyjarsund munu hafa verið mikilvæg í siglingum og verslun áður en Maríuhöfn í Hvalfirði tók við.
Þetta allt gefur nýja hugmynd um rómantískt starfsheiti í stað skpsþernu, nefnilega starfsheitiðhafmeyja!
Að lokum má geta þess að til er í þýsku orð af sama stofni, nefnilega Dirne, sem merkir stelpa, þjónusutstúlka og loks "Freudenmädchen¨" skv. minni orðabók, hvað sem það merkir.

PS: Það bar ekkert til tíðinda í róðri dagsins, þess vegna er gott að grípa til fróðleiksmola :)

Smá innskot frá Sævari Helga: Þegar aðalhöfn Íslendinga , Maríuhöfn í Hvalfirði, allt fram til 1402, lagðist af vegna þeirra skelfilegu áhrifa sem svarti dauði hafði um land allt- þá fluttist aðalhafnar aðstaðan í Þerney og á Þerneyjarsund - einnig til Hafnarfjarðar sem þá tók sín fyrstu skerf til hafskipahafnar. Hafnaraðstaðan var bæði í Þerney sjálfri og eins í landi þ.e beggja vegna Þerneyjarsunds. Leiðin frá höfninni og til Þingvalla var svipuð og frá Maríuhöfn og einnig til Skálholts. Á Þerneyjarsundi var gott skipalægi í skjóli fyrir úthafsöldunni - eins og við þekkjum. Enn má finna rústir landmegin við Þerney frá þessum tíma ,