Image

Reykjavíkurbikarinn var haldinn við Geldinganesið laugard. 19. maí með pompi og pragt.  Úrslit:

10 km kvenna: Heiða Jónsdóttir 1:21:41 - Heimasmíðaður
10 km karla:
Haraldur Njálsson 55:05 - Valley Rapier
10 km 50 ára og eldri:
Páll Reynisson 1:08:15 - Explorer
3 km:
Katla Guðrún Gunnarsdóttir 31:01 - Kitiwec

Heildarúrslit urðu sem hér segir:

  10 km karla 
        10 km kvenna    
Sæti   Nafn
 Tími
 Bátur
  Sæti   Nafn
 Tími
 Bátur
 1  Haraldur Njálsson  55:05  Valley Rapier   1
 Heiða Jónsd.  1:21:41  Heimasm.
 2  Ólafur B. Einarsson  57:55 Ocean X   2  Karlotta Jónsd.  1:23:31  Explorer
 3  Sæþór Ólafsson  1:05:45  Valley Rapier          
 4  Guðmundur Breiðdal  1:07:15  Kirton Inuk          
 5  Ásgeir Gústafsson 1:08:13  Valley Rapier          
 6  Magnús Sigurjónss.  1:12:42  Explorer          
 7  Geir Gunnarsson 1:14:35  Sea Wolf          
 8  Ágúst Ingi Sigurðss.  1:17:40  Heimasmíðaður          
 9  Gunnar Ingi  1:18:40  Valley Aquanaut          
 10  Torben Gregersen  Hætti  Clever X          

 

  10 km 50 ára og eldri        3 km    
Sæti   Nafn
 Tími
 Bátur   Sæti   Nafn
 Tími
 Bátur
 1  Páll Reynisson 1:08:15  Explorer    1  Katla Guðrún Gunnarsd.  31:01  Kitiwec
 2  Tryggvi Tryggvason 1:08:45  Kirton Inuk    2-11  Steggjaparty Óskars Sig.    
 3  Hörður Kristinsson  1:13:40  Explorer          

Bæti hér að lokum við sallafínum texta frá Sævari H. af korkinum:

Reykjavíkurbikarmótið í sjókayak fór aldeilis vel fram .
Róðrarleiðin í 10 km lá frá Geldingarneseiðinu, út Eiðsvíkina,kringum Geldinganesið ,um markið við eiðið ,út í Blikastaðakró, umhverfis Leiruvogshólmann og í mark við Geldinganeseiðið...bráðskemmtileg róðrarleið.
15 keppendur, þar af tvær konur, réru keppnisbrautina.
Veður virtist í upphafi keppni ætla að verða til friðs, en annað kom í ljós.Út Eiðsvíkina var logn og sléttur sjór, en þegar komið var að Helguhólnum skall á vindstengur af norðan og ýfði sjóinn verulega upp í krappa öldu...Srax við Helguhólinn fengu keppendur heldur betur að finna fyrir vindstrengnum og krappri hliðaröldunni. Þegar hér var komið voru í fremstu röð þeir Halli og Thorben (held ég að hann heiti) og rétt þar á eftir Ólafur E. Og við Norðurnesið skreið Thorben fram ur Halla, en Ólafur E. sem var á rúmlega 6 metra langskipi varð , útaf Helguhólnum , að taka hafskipabeygju í átt að Þerney og tapaði við það dýrmætum tíma. Þegar að millivegarlengdar markinu kom,var Thorben fyrstur og Halli rétt í kjölfarinu. Þegar hér var komið ákvað Thorben að hætta keppni þar sem vindur og kröpp aldan var hans örlitla kayak nánast ofviða... en hann stóð sig samt alveg ótrúlega vel að ná að sigra í millivegalengdinni.
Nú hafði Halli forystuna og varð síðan fyrstur í mark eftir að hafa róið seinni vegalengdina...glæsilega gert hjá Halla Njáls. Í skemmri vegalengdinni var fátt um keppendur, ung stúlka sigraði þar með glæsibrag. Úrvalslið áhorfenda fylgdist með keppninni og hvatti sitt fólki til dáða. Að lokinni keppni var töfruð fram grillpulsuveisla fyrir keppendur og áhorfendur og verðlaun voru afhent. Flottum Reykjavíkurbikar á sjókayak var lokið. Að sjálfsögðu fylgja engar keppnistölur með þessu spjalli ...keppnisnefndin sér um það.
Ísfirðinganna var sárt saknað, en veður í Djúpinu hindraði för þeirra suður heiðar. Takk fyrir gott sjókayakmót

Sævar H 

 

prufa

dálkur2

dálkur3

fdlaæfjdkl

fjklaæjfdkjfkldklæafjfdafda

dafdaf

fdafda

fdafdafda

fdafda

fdafda

 

Hér er svo allur korkþráðurinn ...