Kayaknámskeið sumar 2020

01 maí 2020 13:32 - 01 maí 2020 13:33 #1 by Guðni Páll
Kayaknámskeið        
             
Haldin verða kayaknámskeið á eftirtöldumdögum:
21. mai, 4. Júní, 15. Júní og 2. Júlí.

Í boði verða byrjenda ogframmhaldsnámskeið, einnig er hægt að fá veltunámskeið. Hvert námskeið stendur
í 4 klukkutíma eða frá kl 16 til 20.
Gjaldið er 20.000 kr per mann og erallur búnaður innifalinn, námskeiðin verða haldin í Geldingarnesi við aðstöðu
Kayaksklúbbsins.
Skráning og frekari upplýsingar eru hjáMagga í síma 892-5240 eða msigsmidur@gmail.com .

Byrjendanámskeið
Þar förum við í gegnum allan grunninn: hvaðer kayak, grunnáratök, bjarganir og búnað.
Þetta námskeið skilar þér á þann stað aðþú ert tilbúinn að skrá þig í klúbbinn: kayakklubburinn.is og taka þátt í félagsróðrum
sem eru vikulega frá Geldingarnesi þar sem eru reyndir ræðarar sem stjórna þeim
og sjá um að allt sé öruggt og leiðbeina þér ef þurfa þykir.

Frammhaldsnámskeið
Þetta námskeið er ætlað fyrir þá semhafa lokið byrjendanámskeiði og búnir að ná góðum tökum á grunninum.
Þarna förum við í frekari áratækni þarsem þið lærið stern rudder, bough rudder og hanging draw. Þetta eru þessi fancy
áratök sem þið hafið séð hjá reyndari ræðurum og væri gaman og mjög gagnlegt að
kunna.
Við förum dýpra í bjarganir,sjálfsbjarganir og dráttarlínu vinnu.
Þetta námskeið era að skila þér á þannstað að þú getur farið að taka þátt í flestum ferðum klúbbsins, þó með samþykki
ferðanefndar hverju sinni.

Covid 19                                                                  
Námskeiðin eru haldin utandyra íGeldingarnesi. Búnaður er hreinsaður eftir hvert námskeið. Auðvelt er að halda
2 metra reglu á þessum námskeiðum, þar sem það er nóg pláss í náttúrunni. Ef
fólk finnur fyrir einhverjum einkennum fyrir námskeið, biðjum við það
vinsamlegast að koma ekki á námskeiðsdag heldur bóka nýja dagsetningu. 

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

30 apr 2020 15:29 - 30 apr 2020 20:31 #2 by maggi
Replied by maggi on topic Kayaknámskeið sumar 2020
Námskeiðin eru 21. mai, 4. juni, 15. juni og 2. júlí

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

29 apr 2020 21:56 #3 by Guðni Páll

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum