Reykjavíkurbikarinn fór aldeilis vel fram í morgun. Góð mæting var á Geldinganesið og til gaman má geta þess að fleiri voru mættir til að aðstoða við keppni og sýna stuðning heldur en til að keppa sem sýnir auðvitað félagsandann okkar góða. Keppendur voru átta og allir kepptu þeir í 10 km, ein kona á ferðabát, einn karl á keppnisbát og 6 karlar á ferðabátum. Ólafur fer sínar eigin leiðir í lífinu en tók því með stóískri ró þegar honum var bent á að hann væri ekki á keppnisleið og bætti einhverjum kílómetrum við sína róðraleið.

Tveir gúmmíbátar sáu um öryggisgæslu frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar og þar voru einnig Lárus, Guðni Páll, Eymi og Gísli gjaldkeri.
Bjarni, Egill og Daníel aðstoðuðu okkur dyggilega í tímatöku og utanumhaldi og ýmsir fleiri veittu keppninni góðan stuðning svo sem Reynir, Hörður, Gummi Björgvins, Kolla, Gunnar Ingi og Indriði.

Keppnisnefndin þakkar fyrir góðan dag, keppendum fyrir drengilega keppni og hjálparhellum fyrir góða samvinnu og félagsskap.

 

Niðurstöður keppni voru eftirfarandi:

 

 
Karlaflokkur ferða      
  áragerð Tími kayak
Sveinn Axel Sveinsson Vængár 01:05:56 Taran 18
Þorbergur Kjartansson Vængár 01:09:56 Epic 18
Guðmundur Breiðdal Vængár 01:14:58 Kirton Inuk
Edwin Zanen Vængár 01:16:37 Epic V5
Ólafur Einarsson Vængár 01:19:42 Epic V8
Waldemar Euro 01:22:12 Valley 
       
       
Kvennaflokkur Ferða      
Veiga Grétarsdóttir Euro  01:14:18 Taran
       
Keppnisflokkur       
Gunnar Svanberg vængár 01:09:56 Epic V8 Pro