Bessastaðabikarinn 2007 (25. ágúst. kl.12)
Kajakklúbburinn Sviði á Álftanesi heitir eftir landnámsmanninum Sviða sem bjó á Sviðsholti á Álftanesi, næsti nágranni Vífils á Vífilsstöðum. Við félagarnir höfum heyrt frá elstu mönnum á Álftanesi (nú horfnir yfir móðuna miklu) að Sviði hafi tekið smákrók til Gænlands á leiðinni hingað og keypt forláta húðkeip sem hann lék sér á í tómri gleði yfir landinu nýja. Reyni einhver að afsanna þessa sögu önsum við því í öngvu og látum sem ekkert sé.
Sviði er nýr kajakklúbbur stofnaður 2005 sem nýtur velvildar í bæjarfélaginu sem hefur stutt okkur með myndarlegu fjárframlagi til kaupa á búnaði og afnot af sundlauginni til æfinga.
Við viljum gjarnan auka við flóruna í kajakkeppnum og endurlífga Bessastaðabikarinn með okkar lagi. Leiðin er ca. 12 km, þar sem þarf að takast á við strauma og fjölbreyttar aðstæður
Tíminn (þ.þ 25. ág. 12:00) er valinn v. sjávarfalla. Í ár er smástreymt á keppnisdag og ófæert inn í Skógtjörn um strauminn.